Mættu nú alveg vera fleiri.
Jæja, það verður a.m.k. góðmennt. Hlakkar enn til xT
Mikið rétt. Það er afskaplega góðmennt.
Fámennt en góðmennt eru orð að sönnu.
Árshátíðin var sérlega vel heppnuð. Ljómar upp
Er eitthvurt samhengi milli téðrar árshátíðar og óvenju mikils annríkis hjá lögreglunni á stór-Mosfellsbæjarsvæðinu?
Madam neitar algjörlega allri sök á óeirðum þeim sem hrist hafa upp í Mosfellsbæjarsvæðinu, né samþykkir hún að sam Gestapóar hafi nokkurn tímann stuðlað að ofbeldisverkum. Hins vegar játar hún fúslega að hafa málað bæinn rauðan, á dramatískan máta.
Árshátíðin var afar skemmtileg og rikti mikill samhugur meðal Texa sem var fjöllmennur á svæðinu. Drykkja var í meðalhófi, (með örlitlum undantekningum þó), og rútuferðin til Reykjavíkur var hressilegur endir á góðri skemmtun. Þið sem ekki mættuð eruð andlega fátækari fyrir vikið.
Hvar auglýsir maður óskilamuni? Hér á Þarfaþingi varð allavegana eftir grá evans-peysa. Í vinstri vasa hennar er nafnspjald frá einhverju sem heitir Tantra Temple. Kannast einhver við það?
Hlær
Ég frétti að raunheimaleikkonan sem lék mig hefði ekki haldið neinu niðri og gert skömm og skandala af sér, mér finnst þetta alveg fáránleg framkoma á svo virðulegri skemmtun, ég ætla að reka hana!
Það var gaman að hitta ykkur, eða það minnir mig amk....Klórar sér í höfðinu
Ég held svei mér þá bara að ég komi næst.
Ég held svei mér þá bara að ég komi næst.
Ljómar upp