Jæja, ég er með 10 leðurdverga á kantinum, lemúr og tapír á grillinu, ískaldan, kóbaltbættan Admiral í kassavís og starfsmannahljómsveit Landbúnaðarráðuneytisins, pönkhljómsveitin Eyðublað Nr. 566, spilar undir dansi. Björgunarsveitir, prestar og böffergellur eru "stand by".
Hver er með í geim?
Skál!
Hver er með í geim?
Vjer ! Kemur með geimskipið í partýið og prófar að setja það í gang...
Kæri Vlad!
Ertu ekki með beta útgáfu af einhverju tortímingartóli sem afar óróðlegt þykir að stjórna í ölæði? Það vantar alveg skemmtiatriðin í þetta teiti!
En þjer spurðuð hvort vjer værum með í geim ?? Horfir yfir miklar brunarústir og veltir fyrir sjer hvort einhver alvarlegur misskilningur hafi átt sjer stað
En varðandi teiti þykir oss óskemmtilegast að stjórna tímavjel í ölæði. Það er nógu slæmt að vakna og muna ekkert en enn verra að vakna og vita ekki einu sinni hvenær maður er staddur.
Er þetta kannski betra ? Kemur með tankbíl af fagurbláum, sjálflýsandi drykk en skilur tímavjelina eftir enda stal Einn gamall en nettur henni
Prestar?? Sjiiii... Þetta partý gæti orðið of villt fyrir mig. Sýpur límónaði úr flösku með röri
Kemur inn á harðaspretti, ber að neðan fyrir utan svuntuna
Það er sko ekkert partý án Hvæsa !
Hefst handa við að blása upp litla buslusundlaug, og tekur sér svo um hálftíma í að fylla hana
Tekur tilhlaup og gerir fallbyssukúluna í laugina þannig að vatn skvettist á alla
Hver ætlar að rétta mér blút ?
Réttir Hvæsa blút og kork
Það tilkynnist hjer með opinberlega að heldur finnst oss partý þetta fámennt sje mið af því tekið að meira en vika er síðan það hófst; leggjum vjer því formlega til að hafnar verði formlegar umræður um partýgestafjölgunaraðferðir og verði þetta því partý með þemað partýgestafjölgunaraðferðaumræður þar til vandamál það er umræðurnar snúast um er leyst. Skál ! Kemur með drykki fyrir þátttakendur í hinum formlegu umræðum
Ég held að Hvæsi hafi drukknað.
Prumpar myndarlegum loftbólum í laugina
Nei nei, ég er fínn, bara soldið þyrstur, búinn að fá einn blút á þessari viku.
Hversvegna var mér ekki boðið í partýið? Fer í rosalega fýluStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Prestar?? Sjiiii... Þetta partý gæti orðið of villt fyrir mig. Sýpur límónaði úr flösku með röri
Mætir með skírlífisbeltið, skyldu þeir vera katólskir
En, Vlad, af hverju voruð þjér að mæta með allt þetta magn af fagurbláa drykknum þegar þjér vissuð að vjér myndum mæta með vorar birgðir, þó seint yrði. Skammast ósköpin öll (Þó mest í hljóð)i, en rekur þó í rogastanz og þagnar um leið og augun reka í Hvæsa og Offara Jég skil! Kallar á stórbláa liðið Hjér höfum vjér Fagurbláa drykki í borpallavís.
Býður Vlad upp á Grillolíu í kæligeli
Hellir vatninu úr buslulauginni sinni og fyllir hana af fagurbláum drykk
Takk Sloppur.
Tekur fallbyssukúluna ofaní laugina svo fagurblár dykkur skvettist á alla
Ljómar upp Neisko, nú eru allir fallega Hvæsabláir Ljómar aftur upp
Ljómar upp Neisko, nú eru allir fallega Hvæsabláir Ljómar aftur upp
Fer í sturtu og veltir sjer jafnframt í heyi
Nei, vjer erum fagurgrænir Ljómar upp.
Skál !
Hér með tilkynnist að Hreiðari Má Sigurðssyni verður aldrei boðið til geims.
Kíkir yfir heimavarnarlistann
Hver er það ?Klórar sér í höfðinu
Má ekki bjóða Hreiðari?