Það fóru 10 kg af súpu í gólfið á mánudag, missti maddamman 17 kg tómatakassa á tærnar á sér á þriðjudag, miðvikudagur var nokkuð stórslysalaus en í dag fór 25 kg smjörklumpur í gólfið, samtals 52 kg.
Ég missti 50 kílóa dreng útí sjó, að vísu var hann orðinn 55 þegar ég veiddi hann aftur uppúr þannig að ég bætti á mig 5 kgGlottir eins og fífl
Ég missti 11 kílóa bók á gólfið. Það varð hávaði.
GSM sími og penni. Telur það nokkuð?
Ég missti af lest. Hvað telur það mikið?
Held að ég hafi bætt á mig 6kg.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég þori ekki að stíga á viktina til að athuga hvað tapið er mikið.
Ja, ég missti stóran bita af Foie Gras í gólfið, það er dýrt.Starir þegjandi út í loftið
Missir sig
Snýr öllu sér í hag og missir Hvæsa Þar missti ég um 90 kíló af kokki.
Nuddar afturendann
Og þarna missti ég göngulagið
Haltrar inn á hinn þráðin og sigrar
Ég missti 1,5 kg. af blóði...
Ég missti 1,5 kg. af blóði...
Vá! Ertu þá orðinn blóðlaus?
Hef ekki tapað grammi þessa vikuna. Ljómar upp
Ég missti 1,5 kg. af blóði...
Vá! Ertu þá orðinn blóðlaus?
Nei. Fékk 2 l. af saltvatni í æð.