Eru þessi illfygli svo stór að þau geti gleypt hann Blesa minn í heilu lagi? Hleður hólkinn
Það er fátt sem ákveðinn Pelíkani getur ekki lagt sér munns;
Ég legg til að almennir borgarar Baggalútíu haldi sig í fenjum þar til hættuástandinu hefur verið aflýst, en krókódílar eru svarnir óvinir Pelíkana og munu vernda fólkið, komi til þess.
Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði!
Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði!
Eru óvinir ríkisins með aðsetur þar ? Horfir á rauða takkann
Nei, það er í eintómu mikilmennskubrjálæði og mannvonskukasti sem ég sting upp á þessu.
Fylgist spenntur með rauða takkanum
Ýtir á rauða takkann "til að prófa hvort gjöreyðingarvopnin virki ekki örugglega"
Bara eitt kremkex í skálinni, þetta er hneyksli!
Mikið déskoti langar mig í kremkex.
Ýtir á rauða takkann "til að prófa hvort gjöreyðingarvopnin virki ekki örugglega"
Núna sé ég að mestu hvítan skerm. Hvað merkir það?
...að skermurinn sem þú fékkst um hálsinn svo þú værir ekki að sleikja sárið á löppinni virkar bara svona glimrandi velGlottir eins og fífl
Ýtir á rauða takkann "til að prófa hvort gjöreyðingarvopnin virki ekki örugglega"
Núna sé ég að mestu hvítan skerm. Hvað merkir það?
Það gæti bent til að það sem vjer vorum að prófa virki Ljómar upp.
Svo virðist sem aðgerðir okkar hafa komið stjórnarskipulagi Pelíkanana í uppnám, en njósnarar á vegum Baggalútíu hafa náð myndum af innbyrðis deilum meðal þeirra.
Mér sýnist pelíkaninn vera að éta pelíkana en ekki önd. Eins gott.
Annars er ég enn að furða mig á hvíta skerminum sem ég horfi á eftir að Vlad ýtti á rauða takkann. Þegar ég fer að skoða betur þá er blár ferhyrningur í skerminum og nokkur tákn. Ætil þetta bláa sé góðs viti?
Varhugaverðar fréttir, innbyrðis átök þeirra eru líkleg til þess að koma hófsamari pelíkönum frá völdum. Þá verða þessi óargadýr fyrst til verulegra vandræða.
Leggur til atlögu við fyrsta pelann
Pelíkanar eru ekkert öðruvísi en aðrir Kanar. Henda bara til þeirra nóg af hamborgurum. Þá verða þeir svo rassþungir að þeir geta ekki flogið. Eftirleikurinn ætti svo að vera auðveldur, stilla þeim upp fyrir framan sjónvarpið...
Þessi óargadýr gerðu atlögu að mér þar sem ég var á gangi í gær. Ég átti fótum mínum fjör að launa en líklega hefur einhver verið búinn að gefa þeim hamborgara því botninn á þeim var ansi þungur og gat ég því hlaupið þá af mér. Ég tel að það væri réttast að fóðra þá á hamborgurum eins og Huxi leggur til svo við getum að minnsta kosti komið okkur undan ef þeir gera árás. Best væri síðan að koma fyrir sjónvarpstæki einhversstaðar í útjaðri Baggalútíu og þá væru þessi kvikyndi vís með að halda sig bara þar.
Þið skulið ekki fagna of snemma. Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að það sé akkúrat svona sem pelíkanar borða krókudíla, þeas innanfrá!
´Tæmir Pelíkanann sinn.
Og enn færa þeir sig upp á skaftið... íhugar að flýta heimför frá Ástralíu...