Ég er Huldra. Ég er ekki öll þar sem ég er séð og ekki sýnileg öllum en ef þú sérð mig og þorir að koma nær þá muntu sjá að ég er ekki sú sem þú heldur að ég sé. Ég er algjörlega meinlaus, nema þú gerir mér mein og ég held mig að mestu í felum.
Setur upp gleraugun
Já, þarna ertu þá! Ljómar upp
Velkomin.
Og reyndu nú að hegða þér skikkanlega hérna.
Þakka þér fyrir. Ég skal vera stillt. Glottir eins og fífl
Ef þú ert ekki öll þar sem þú ert séð hlýtur þú að vera býsna stór.
Velkomin. Ljómar upp
Margvelkomin Huldra. Ég horfi að vísu ekkert af viti, enda glápi ég alltaf eitthvað útí buskann. Ég vona að það komi ekki að sök.
Það kemur ekki að sök, enda er ég alltaf einhversstaðar útí buskanum þannig að þú gætir rekist á mig.
Velkomin sértu. Mundu bara að ganga vel um og þurrka af fótunum á þér áður en þú stígur í salinn.
Sæl og velkomin. Það er alltaf gaman að fá nýtt fólk í hópinn. Þú vilt kannski segja okkur hvað varð til þess að þú ákvaðst að flytja til Baggalútíu?
Takk Huxi. Ég hef fylgst með Baggalútíu úr fjarlægð í dágóðan tíma án þess að hætta mér nær. En ég var orðin leið á að vera ósýnileg svo ég ákvað að flytja til ykkar. Ljómar upp
Það bendir til þess að þú sért nægilega sérstök til þess að falla í hópinn. Ljómar upp
Kanntu að yrkja?
Velkomin Huldra.
Vertu ekkert að hlusta á þá sem segja þér að hegða þér vel. Það er mun meira gaman af þeim sem ekki fylgja normunum.
Ég er Huldra. Ég er ekki öll þar sem ég er séð og ekki sýnileg öllum en ef þú sérð mig og þorir að koma nær þá muntu sjá að ég er ekki sú sem þú heldur að ég sé. Ég er algjörlega meinlaus, nema þú gerir mér mein og ég held mig að mestu í felum.
Þýðir þetta að þjer sjeuð laumupúki ? Ljómar upp
Vjer bjóðum yður formlega velkomna með hefðbundnum fyrirvörum.
Hvar fær maður svona nuddolíu með svona flottum ilm?
Takk fyrir. Já ég held að það sé óhætt að segja að ég sé sérstök, þó ekki kannski á þann hátt sem flestir halda. Og jú, ég yrki en ég er ekki viss um að það mundi falla ykkur Baggalútíubúum í geð, en það kemur ef til vill í ljós síðar.
Ég laumast mikið og oft er ég svolítill púki líka svo það gæti eflaust verið hægt að kalla mig laumupúka. En ég mundi aldrei viðurkenna það opinberlega enda væri það þá ekki neitt laumu lengur heldur á allra vörum.
Og varðandi nuddolíuna, þá veit ég um stað þar sem hún fæst, en þú verður þá að koma með mér svo ég geti sýnt þér hann. Ljómar upp
Sér ekki Huldru og labbar á hana
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið