Sæl verið þið virðulegu Bagglýtingar. Mér skilst að það sé við hæfi að nýliðar kynni sig hérna. 3,14 er ég kölluð. Ég geri ekki mikið mál úr því hvort að þið berið það fram sem þrírkommafjórtán, þrírkommaeinnfjórir, pí, pæ eða jafnvel á einhvern nýjan og framúrstefnulegan hátt. Ég hef gaman af karlmönnum sem klæða sig upp sem konur, rokktónlist og góðum mat. Ég hef óbeit á þýskum túristum, nöktu fóki í sokkum og lýsi. Ég ætla að láta þessa hraðstefnumótakynningu duga í bili svo að þetta verður ekki lengra hjá mér.
-3,14
Góða kvöldið, það eina sem þú þarft að vita er að ég er í herbergi 4, það er óþarfi að banka því það er opið.
Hlakka til að sjá þig.
Koss og knús!
Djöfull ert þú kinky.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Voru slík orð og hugsanaháttur kennd í sveitaskólanum?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomna með hefðbundnum fyrirvörum. Er ekki alveg ljóst að þjer teljist eigi til óvina ríkisins ?
Sæl og velkomin. Mér sýnist þú vera nokkuð vel að þér í mannasiðum og Bagglýtískum umgengnivenjum. A.m.k. hefur þú nú þegar notað hérdvöl þína til að segja eitthvað ljótt um mig... En það hlaut að koma að því fyrr eða síðar. Það munu sjálfsagt einhverjir verða til að segja þér að fara í Innflytjendahliðið svo ég ætla að láta það vera. Og ég myndi alveg sleppa því að mæta þangað ef ég væri þú. Þar ertu bara látin skræla katöflur eða þér verður velt upp úr tjöru og fiðri...
Ef þú skrifar vandað og gott mál og heldur í heiðri almennar kurteisivenjur, þá eru á rétta staðnum... Annars geturðu bara farið á hu**.*s
Ég tel það alveg öruggt að ég sé ekki óvinur ríkisins. Ekki enn sem komið er allavega. Ég þarf að stækka herinn minn töluvert og sanka að mér frekari upplýsingum áður en ég læt til skarar skríða. Þannig að ég verð meinlaus í um það bil tvö til þrjú ár í viðbót.
Velkomin 3,14. Getur verið að rétt nafn þitt sé Pí?
Gott að þú ert stelpa það er allt of mikið af karlpungum hér.
Sjálfur heiti ég Upprifinn og er að því er mér er sagt aðaltöffarinn á gestapó.
Ég tel það alveg öruggt að ég sé ekki óvinur ríkisins. Ekki enn sem komið er allavega. Ég þarf að stækka herinn minn töluvert og sanka að mér frekari upplýsingum áður en ég læt til skarar skríða. Þannig að ég verð meinlaus í um það bil tvö til þrjú ár í viðbót.
Þegar Hebbi,Skabbi og Upprifna()=Ö(/&%$rassgatið hæla þér öll, þá ertu sjónhverfa. (Ekki ný kolategund)
Horfir með Georgs Bjarnfreðar svipnum sínum á þennan nýliða
Kemur með langt prik og potar laust í þessa skrýtnu veru
Í fyrsta lagi skaltu ekki trúa fíflinu honum Uppa, það er ÉG sem er mesti töffarinn hér.
Í annan stað, hverra manna ertu ?
Og í þriðja lagi, hvað tekuru í bekk ?
Já og í fjórða lagi skaltu breyta titlinum á þessum þræði, hann er villandi.
Það er dagur, ekki kvöld !
Sæl og velkomin. Mér sýnist þú vera nokkuð vel að þér í mannasiðum og Bagglýtískum umgengnivenjum. A.m.k. hefur þú nú þegar notað hérdvöl þína til að segja eitthvað ljótt um mig... En það hlaut að koma að því fyrr eða síðar. Það munu sjálfsagt einhverjir verða til að segja þér að fara í Innflytjendahliðið svo ég ætla að láta það vera. Og ég myndi alveg sleppa því að mæta þangað ef ég væri þú. Þar ertu bara látin skræla katöflur eða þér verður velt upp úr tjöru og fiðri...
Ef þú skrifar vandað og gott mál og heldur í heiðri almennar kurteisivenjur, þá eru á rétta staðnum... Annars geturðu bara farið á hu**.*s
Þakka þér fyrir hlýjar kveðjur, ég reyni mitt besta til að passa inní. Mér skilst að besta leiðin til þess sé að bauna á þig. Að skræla katöflur væri ný og spennandi reynsla fyrir mig þar sem ég hef aldrei séð svoleiðis áður. flissar
Velkomin 3,14. Getur verið að rétt nafn þitt sé Pí?
Pí, Pæ, Pæja, og Baka. Pí er samt fínt.
Velkominn...
Þakka þér fyrir. Ljómar upp