Já það er nú það Vlad. Getur þú ekki helst sjálfur svarað þeirri spurningu? Þið voruð orðin svo "samrýnd"
Eigi getum vjer það og koma þar til þau ósamhverfu vensl er nefnd hafa verið - þau fela það m.a. í sjer að við vorum/erum samrýmd í allra mesta lagi í aðra áttina.
Hrökklast enn á ný afturábak og hrasar við
Nú hefur nafn þessa þráðar enn á ný breyst. Svo saga þessa þráðar gleymist ei er hjer listi yfir nöfn þau er hann hefur haft (birt með fyrirvara um mögulegt minnisleysi, sbr. áform fyrr í þræðinum um læknisrannsókn):
Ég [sic] er hún (upphaflegt nafn þráðarins)
Vjer erum hún
Hvar er hún ? (nafn þráðarins frá og með 10.12.2009)
Veitir því athygli að svo virðist sem verið sje að herma eftir því sem sumir myndu kalla sjervisku varðandi staðsetningu spurningamerkja
Já, og golfarinn nýi virðist apa téða sérvisku eftir líka - enda api.
Tiger ert þú hér !
Mér finst þettað vera hallærislegur þráður .
Já, enda ríkir nú hallæri í hinum vestræna heimi.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að í ljósi lítillar virkni undanfarna daga í þræði þessum verður að telja að móttöku nýliða þessa sje hugsanlega lokið. Var hjer um að ræða lengstu og skemmtilegu nýliðamóttöku í nokkuð langan tíma. Það verður þó að teljast nokkur galli að nýliði þessi stundar tiltlaþjófnað og að eigi er fullkomlega víst að hann teljist til óvina óvina ríkisins Klórar sjer í höfðinu.
Það væri best ef hin konan mundi bara þegja. Klórar sér í hattinum
Nýliðamóttakan er stundum skemmtilegri en nýliðinn Glottir eins og fífl.
krútt
Ég held að ég sé með þvagfærasýkingu.
Ég er gjörsamlega sammála Texa að hin konan ætti að hafa vit á að klóra sér í hattinum
Ég verð að vera ósammála forsetanum - ég tel móttöku ekki lokið.
Tekur mót af fótum hinnar konunnar
Það er þá kannski komið að því að gera formlegt hlje á nýliðamóttökunni í þessum þræði og hefja nýliðamótlok ? Leitar að Gestapóhandbók um nýliðamótlok en finnur enga
Þarf ekki að hefja nýliðamótið áður en því skal ljúka?