Hér með er fyrsta tréið gróðursett í Baggalútíu! Stekkur smæð sína
Vantar ekki áburð? Gefur skít
Í tilefni af þessum stórmerka viðburði sækji ég formlega um stöðu Skógarvarðar Baggalútíu.
Afhendir sendli skjalatösku þétttroðna af 1000 bagga seðlum ásamt umsóknaeyðublöðunum vandlega útfylltum, í 7 riti og sendir hann síðan af stað út í buskann, til að leita að Don de Vito, embættamálaráðherra
Kaupir sér Uppreimaða Dachsteiner skó, Lee gallabuxur og þykka rauðköflótta flannelskyrtu.
Kaupir sér öxi
Gróðursetur næsta tré...
Þetta er að verða spennandi.
villist í skóginum
Sér trén. Ágætt! Nú getum við loksins farið að stunda sviðuræktun.
villist í skóginum
Átti þetta ekki að vera Villist á skóginum ?
Nýuppgerð Lada torfærubifreið til sölu, framleidd í Тольятти.
Um er að ræða það sem hér á landi kallast Lada Sport, en í siðmenntuðum þjóðum hefur verið kallað Lada Niva (Lada Нива). Bíllinn er árgerð 1982 og er 82 hestafl og hentar einstaklega vel skógarvörðum, enda búinn sídrifi.
Gaman er að geta þess að þessi tiltekni bíll er "DeLuxe" útgáfan og er hann því ríkmannlega búinn; ámálað hanskahólf, sætaáklæði eru úr eftirlíkingu af gervileðri, fullkomlega hringlaga stýri og hálfsjálfvirkur bensínmælir. Mikið er lagt upp úr öryggi í Lada verksmiðjunum og er bíllinn því einnig búinn stuðpúða ef keyrt er inn í hægri hlið bílsins (aðeins ef farþegi er með).
Ásett verð: 500.000 rúblur (jafngildir 20.000.000 Zimbabwe-dollurum).
grefur Heino í skóginum
Þýðir þetta að ég hef verið kolefnisjafnaður? Er ég þá kolefnisjafnaðarmaður?
Er hægt að fá umræddan bíl með gervifarsíma (helst stórum og áberandi) ?
Það er innbyggður sími í bílinn. Þegar hringt er blikka ljósin og flautan þenur lúðrana í takt.
Kveikir í Heino og fleygir honum niður í undirheima.
Rogast inn með búr fullt af íkornum og sleppir þeim inn í skóginn
Svona, nú er þetta alvöru!
Drekkur nokkrar kippur af bjór og vökvar svo trén