Þakka, þakka. Gleður mig og hræðir að vera hér. Þessi mynd er sú skásta sem ég átti af mér. Ég var nývöknuð úr roti eftir að hafa flogist á við þrjá sjómenn og eina geimveru.
Hrökklast afturábak og hrasar við
Geimveru ?! Hvar rákust þjer á hana ? Er hún dauð eða má nýta hana sem tilraunadýr í tengslum við smíði á opinberri stjörnusambandsstöð ? Ef hún er dauð er hún þá varanlega dauð, tímabundið dauð eða eitthvað þar á milli ?
Vér teljum Geimveruna vera í fullu fjöri, svo vel má nota hana til hinna ýmissu tilrauna.
Nýr saman höndum af æsingi.
Ég hef eiginlega meiri áhuga á að fá nöfn sjómannanna, en altént, velkomin núrgis.
Ég yrki'um von í voða flýti:
Velkomin sértu núrgis,
áttu nokkuð Ákavíti
eða bara súrmys-
u
Sæl vertu núrgis og velkomin. Vertu bara eins og heima hjá þér en láttu það vera að gramsa í skápnum, eins og er sagt í minni sveit.
Vá ég fékk kvæði og allt. Geimveran stakk af með veskið mitt, en ég er nokkuð viss um að það sé hægt að gera tilraunir á henni. Þ.e.a.s. náist hún fyrir rest. Sjómennirnir voru af rússneskum togara og hétu þeir Vlad, Vladirmir og Gdankidans. Þeir stungu af með ákavítið mitt svo nú sit ég upp með súrmys-u.
Í skólastofu ég sit nú ein
á rófu minni marin
Á Ölstofunni varð mér mein
ég fór of oft á barinn.
Hæ!
Fín efnistök og góð hugmynd en útfærslan fær 0,5 (komma fimm er fyrir stafsetninguna, hún er prýðisgóð). Hér er afar vel séð að fólk yrki rétt, þ.e.a.s. notist við stuðla og höfuðstafi og hafi lágmarksþekkingu í bragfræði (ekki það, sumir eru leirskáld og sóma sér vel sem slík en lengi má gott bæta og allt það..).
Endilega kíktu á þráðinn Skólastofan eða inn á skáldanördasíðuna rimur.is ef þú hefur frekari áhuga á kvæðagerð og ljóðlist.
Ljóðið reyndist, leitt að segja
loða illa saman.
Úr því bæta má þó, meyja,
mun þá verða gaman!
Vertu annars velkomin..
Þakka þér fyrir þessi ágætu ráð. Mér til varnar vildi ég bara segja smá frá stöðu minni þá stundina. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta er ekki mitt besta verk, enda ekki unnið eftir kúnstarinnar reglum.
Annars hef ég séð hvernig þú átt til með að fara með nýliða hér, svo ég prísa mig sæla. Allavega í bili.
Bless í bili.
Guðmundur frá Gili. (núrgis)
Þakka þér fyrir þessi ágætu ráð. Mér til varnar vildi ég bara segja smá frá stöðu minni þá stundina. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta er ekki mitt besta verk, enda ekki unnið eftir kúnstarinnar reglum.
Annars hef ég séð hvernig þú átt til með að fara með nýliða hér, svo ég prísa mig sæla. Allavega í bili.
Bless í bili.
Guðmundur frá Gili. (núrgis)
Það er aldrei að vita nema maður mildist aðeins með árunum og leyfi einstaka nýliða að sleppa í gegnum síuna...
Svo er mér sagt að vilji maður borða gott kjet, þá sé best að kaupa það snemma og láta það standa í þó nokkura stund. Þá meyrnar það.
Megas er Sagem á afturábakísku og það er einnig heiti yfir ákveðna tegund af ráterum.
Ég hér með afsala mér ábyrgð á öllum stavsettningarvillumm, kommu og hástafahikki og hveðeina til sl. 5 rauðvínsglasa.
Ölvun er engin afsökun fyrir stafsetningarvillum. Það tekur bara lengri tíma að skrifa innleggin.
Fröken Svipa tekur nýliða Núrgis í karphúsið. Nýliði Núrgis slapp. Fröken Svipa með hvítar tennur eins og sólin fann hana í fjöru og tók hana svo í bakaríið.
Hausinn ofaní maga, magann ofaní skó..
Ég veit, ég á innkomu eins og dýmamít. (I make an entrance with a BANG!). Sem er náttúrlega bara stuð. Hvar er partýið?