ég er ofurnúrgis. þekkt fyrir allskyns óskunda en mun gera mitt besta til að haga hegðun minni svo eigi hljóti ég skömm af. ég er ófétis námsmaur sem sérhæfir sig í grafískri miðlun til almúgans.
ég hef ánægju af áfengum veigum og köttum og fer helst ekki út fyrir póstnúmer mikið hærri en 100. ekki nema til að votta sauðfjárbændum virðingu mína. sem ég geri allsekki nóg af. samt bý ég til prýðilega kjötsúpu og ætti að gera meira af því. tek það til athugunar.
Hæ.
Þú átt eftir að fá fleiri athugasemdir um skort á hástöfum.
Velkominn, ég þigg kjötsúpu og gef smá heilræði í staðinn, lærðu á Hástafalykillinn á lyklaborðinu þínu, því ella verður viðdvöl þín hér óbærileg...
Ég lifi hratt og kann alveg á caps lykilinn. Miðnafnið mitt er Hætta og ég geng með litla sprengju í tyggjóbrefi í veskinu mínu til vonar og vara. Hver Von og Vari eru fylgir ekki sögunni en ykkar vegna skal ég vanda fingrasetninguna á lyklaborðinu. Þakkir fyrir ábendinguna.
Til frekara öryggis skal hér bent á, að á undirsíðum Baggalúts, og þá sérlega á Gestapó, er í hvívetna krafizt stafsetningar, er færi fram úr öllum væntingum, sé miðað við hinn almenna Íslending. Einnig er hægt að innræta slíka stafsetningu, og talsmáta og aðra hegðan samkvæmt henni.
Takist yður að uppfylla allar þær kröfur, er Gestapóar gera til yðar, en þær eru líklega fleiri en þær, er hér eru upp taldar, bjóðum vér yður velkomið, en eigi fyr.
Lifið heilt, núrgis.
.nimoklev utreV .ilref á réh aðilýn ájs namag ,Sigrún læS
Hæ
Ég mun héðan af gæta mín af ýtrustu natni og nákvæmni svo ég muni eigi þurfa að lifa þá skömm að hafa sært blygðunarmálfarskennd Baggalútringa. Eða er það Baggalútara? Svo er aldrei að vita nema ég hendi inn einni limru eða svo.
Ég mun héðan af gæta mín af ýtrustu natni og nákvæmni svo ég muni eigi þurfa að lifa þá skömm að hafa sært blygðunarmálfarskennd Baggalútringa. Eða er það Baggalútara? Svo er aldrei að vita nema ég hendi inn einni limru eða svo.
Baggalýtinga!
Vertu annars velkomin(?). Láttu fara vel um þig.
... ég hef ánægju af áfengum veigum ...
Þú stenst þá allavega grunninntökuskilyrðið hér ...
ég hef ánægju af áfengum veigum og köttum
Mér líst strax vel á þennan nýliða. xT
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn/velkomna/velkomið með hefðbundnum fyrirvörum. Hjer vantar einmitt góða nýliða, helst í allnokkru magni.
Það er mér hin mesta ánægja, heiður og sannkölluð gleði að hafa fengið að njóta þess að vera svo formlega og fallega boðin velkomin í þennan hæstvirta félagskap heldri manna.
Salut félagar.
Yðar auðmjúk
OfurNúrgis SúperSigrún him ógurlega
Him?
Nei, það er öfugt, Súpersigrún him ógurlega. Velkomin annars, gott að sjá hvað þú ert fljót að taka upp góða siði.
Já, ég reyni að gera bara eins og mér er sagt og þá fer þetta allt vel að lokum. Þá er ég reyndar að tala um kennarana mína en maður getur alveg lært almenna kurteisi líka.