Nú er það sumsé komið á hreint að útrásarindjánar frá norður ammeríku fái að kaupa hita í jörðu Reykjanessskaga. Sést hefur til þessara skrælingja í Leifsstöð með fullar fötur af 90 gráðu heitu vatni á leið úr landi. Hvet ég alla sem vettlingi valda að hlekkja sig við næstu ílát og skjólur og þannig hindra útflutninginn. Við förum sko ekki aptur í eitthvað fokking "heita vatnið heim" við ameríkanana, það gekk nógu illa á sínum tíma að fá nokkra skinnbleðla frá frændum okkar í ríki Þórhildar. Í framhaldi af þessu hvet ég lýðinn að líta við í Brynju á Laugavegi hvar úrval hlekkja og hengilása er fremst meðal jafningja. Er rétt að mæla með vönduðustu gerð af búnaði þar sem heita vatnið úr inngangi Helvítis er brögðótt og tærandi. Einnig má bregða linda á mjöðm hvar má lesa "Seifing Næsland". Símanúmerið hjá neyðarlínunni er 112 ef einhver skyldi þurfa aðstoð við að leysa sig til að komast heim í kvöldmat.
[/img]
Það alvarlega við þetta er að þegar við endurheimtum loks aftur heita vatnið verður það vísast orðið kalt.
Einnig væri hægt að koma í veg fyrir að heitt vatn náist úr því háhitasvæði er hjer er til umræðu með því að bora á ská undir það og dæla svo ofan í þá holu ísmolum úr Vatnajökli. Mikilvægt er þó að slíkt gerist með leynd og að sú starfsemi er því fylgir fari fram í öðru sveitarfjelagi. Hugsanlegt er að svona tilraunir sjeu þegar hafnar og að tíðir jarðskjálftar nálægt Kleifarvatni tengist einmitt svona tilraunum Verður afar leyndardómsfullur á svipinn.
Dustar af sér mold og heldur bornum fyrir aftan bak
Hvurslags aðdróttanir eru þetta ?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvað meinarðu þinn kvóta?! Gat nú verið að þetta væri í einkaeign.
Tekur Offara eignarnámi
Hvað meinarðu þinn kvóta?! Gat nú verið að þetta væri í einkaeign.
Tekur Offara eignarnámi
Hrökklast afturábak og hrasar við
Gat nú verið að Offari væri allt í einu í einkaeign Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer.
.
Tekur Offara eignarnámi
Er þetta lánshæft nám?
Útrásarindíánar? Ef við erum nógu mörg þá getum við hent þessu ruslaraliði út fyrir hafsauga........
.
Tekur Offara eignarnámi
Er þetta lánshæft nám?
Ætli eignarnám og legnám séu ekki enn fyrir utan lánshæfismatið, skammarlegt frá að segja!
.
Tekur Offara eignarnámi
Er þetta lánshæft nám?
Ætli eignarnám og legnám séu ekki enn fyrir utan lánshæfismatið, skammarlegt frá að segja!
Hæðarnemar og þrýstinemar fá heldur ekki lán! Skandall.
Ég hef nú aldrei skilið hversvegna menn treysta nemum fyrir hæðar og þrýstimælingum því þessir nemar eru alltaf að klikka.
Á einhverju verða nemarnir að lifa nú þegar námslánin eru skorin við nögl.
Á einhverju verða nemarnir að lifa nú þegar námslánin eru skorin við nögl.
Vændi?
Það er svo sannarlega kominn tími til að fólk hætti að lifa á peningum, og fari að lifa á vændi og rófnarækt. Margir myndu fá sér hunda til þess að auðvelda sér rófnaræktina, og vændi má stunda allan ársins hring. Og sjá: hér yrði komið fyrirmyndarsamfélag eftir svona 2-3 fagnaðarár.