Hjálp!
Upp er komin borgarastyrjöld í veldi Dana. Hér berjast menn og konur um heitt málefni og engin niðurstaða er í sjónmáli.
Hvort gefur tvistur full stig (sem "sérstakt spil") eða eingöngu fimm stig í uppgjöri, sé hann notaður sem tvistur. Sumsé sé hann til dæmis notaður: tvistur-þristur-fjarki eða tvistur-tvistur-tvistur?
Það fer eftir því hvort það megi breyta með áttunum.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið. Glottir
Ég hef ávallt spilað með þessari stigagjöf:
Rommý= 50
Ás=15
Mannspil og tíur = 10
Hundar = 5
Tvistar=30
Tvistur gildir 30 sama hvort hann er látinn gilda eitthvað annað eða er notaður í samstæðu (tvistur-tvistur-tvistur) eða í röð( kóngur, ás tvistur) Þannig ef einhver er með tvist sem tvist í borði er sá öruggur með a.m.k. 30 stig, því ekki er hægt að taka þann tvist burtu.
Hjá mér er það þannig að tvistur gildir sem 50 sé hann á hendi og því ráðlegt að losa sig við hann. Í borði jafngildir hann því spili sem hann kemur í staðinn fyrir. Annars þykir mér þessi tvistaregla bara fyrir aumingja því hún er seinni tíma viðbót. Annars þá gef ég 20 fyrir ásana. Annað er eins og hjá Væna.
Frábær viðbót herra Sívertsen. Ég hugsa að ég þrói þessa mismunandi-verðgildi-fyrir-tvista-reglu inn í seinni tíma spil.
Græði ég á því að kaupa vopn og flytja til Danmerkur og selja á tvövalt eða margfalt dýrara verði gengjunum eða hverjum öðrum sem eru að berjast?