Úps! En þóttist vita að þetta væri á skjön hjá mér. Það er bara svo gaman hvað allir verða fúlir þegar maður er ekki með á nótunum!
Úr dimmunni rís dagurinn,
og dögg á blöðum er.
setur upp Georg-Bjanfreðssonar svip Snautaðu af þræðinum!
Úr dimmunni rís dagurinn,
og dögg á blöðum er.
Er hægt að fá vísbendingu?
Ég kveiki ekki á neinu rímorðanna.
Úr dimmunni rís dagurinn,
og dögg á blöðum er.
Komdu inn í kofann minn
í kvöld er skyggja fer.
Slær sig í ennið
Ég hélt að það ætti að ríma við dagurinn, eins og bragurinn eða eitthvað svoleiðis. En er ekki seinasta línan " er kvölda og skyggja fer".
Jú mig minnir það. Annars var dagurinn nokkuð villandi, ég sé það núna.
Ívar á réttinn.
Ilm af vindlum vægan finn
því að veldi mitt ég um mig spinn
Ilm af vindlum vægan finn
því að veldi mitt ég um mig spinn
Brátt sátu flestir kinn við kinn
og kominn var galsi í mannskapinn
Ekki það sem leitað er að. Minn texti er ætlaður sem eins konar forspil að viðlagi sem við þekkjum flest vel... Eða ættum að þekkja.
Enginn?
Jæja, lag þetta er samið af textahôfundinum og flutt af fjórum söngvurum nema hvað tveir þeirra syngja ekkert í laginu.