Hvað er visir.is: + ?
Er það visir.is sem birtiir fréttirnar klukkutíma síðar en þær birtast á alföfvöru vfnum?
Já, finnst þér þetta ekki ógó sniðugt? Annars myndi maður missa af helmingnum af því sem er á netinu.
Ef kynferði er að vera karl eða kona, hvað er þá kynferðisbrot?
Að vera hvortveggja eða hvorugt.
Svar núrgiS er flott. Glottir eins og kynskiftingur! xT
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/11/04/gaesluvardhald_framlengt_a_sudurnesjum/?ref=fphelst
Heilt bæjarfélag í gæsluvarðhaldi?
Efsta fréttin á falsmiðlinum mbl.is er nokkuð áhugaverð að þessu sinni. Fyrirsagnir um jarðgöng eru yfirleitt nógu perralegar þegar talað er um "síðasta haftið" o.s.frv., en núna stóð: "Kristján sprengdi í göngunum."
Á nokkrum vefmiðlum stendur fyrirsögnin Sprenging í flugeldaverði. Alltaf þarf ég að hugsa mig um í sekúndubrot áður en ég gleymi hvað þessi vörður kemur málinu við.
Fjölþreifinn hann Össur.
Stunginn í Þórðarsveig?
Hvar er Þórðarsveigurinn?
Og ætli það sé verra að vera stunginn í Þórðarsveiginn heldur en að vera stunginn í t.d. brjóstkassann eða í kviðinn?
Ég heyrði ekki betur en talað væri um KULDAvatnsleiðslu í fréttunum á Sk1 áðan. Allir að muna að skrúfa fyrir kuldavarnið.
Það er aldeilis stormasamt þessa dagana. Meira að segja draugarnir fjúka.
Í upphafi (þráðar) var orðið: "Hér á að senda inn tvíræðar fyrirsagnir sem hafa birst í blöðum - nú eða gætu birst það ef menn vilja flíka sköpunargáfunni
Ég byrja á tveimur raunverulegum:
Látnir sópa götur
Dagur á Akureyri um auknar vinnuskyldur slökkviliðsmanna sem þeim líkaði illa. Lesendur lásu margir annað úr þessu."
Hafa skal það sem fyndara reynist.
Þessi fyrirsögn af forsíðu Dags, hinu sama blaði og gjörði grein fyrir og all ítarlega, námsvist negra í Þistilfirði, var tvískipt um mitt blaðið. Það kom með tíðkanlegum hætti brotið í miðið inn um bréfalúgur, ellegar ofan í póstkassa alþýðunnar, sem þá bjó sem nú í blokkum, oft nefnd fjölbýlishús. Mátti sjá á hlið A, sem kalla mætti, með letri smáu "Slökkviliðsmenn á Akureyri". Á hlið B, gat að líta fyrirsögnina hverja ekkert samhengi hafði við hlið A, ef svo bar yndir "Látnir þvo strætisvagna á nóttunni?"
Það er aldeilis stormasamt þessa dagana. Meira að segja draugarnir fjúka.
Ég vissi ekki að Englendingar ættu landslið í rugli.
Frambjóðendur í prófkjöri Í-listans bornir í öll hús bæjarins.
Það hlýtur að vera afrek, sérstaklega ef þeir fara ekki sjálfviljugir.
Auglýsing sem ég heyrði aðeins einu sinni lesna á aðventunni á RÚV "Vantar þig greni, komdu í Hafnarfjörð" Hús í Hafnarfirði eru sennilega frekar bágborin.
Kristur sterkur í kröfuboltanum:
http://vefblod.visir.is/index.php?s=3882&p=90049
Bylting í manneldisvinnslunni
Nýsköpun í atvinnuvegum er gott mál.
Ætli þetta fari svipað fram og laxeldi?
Er einhver markaður fyrir afurðirnar í manneldinu?
http://visir.is/allar-personulegar-abyrgdir-btb-a-islandi-felldar-nidur/article/2010659190977
Æstir og látnir sofa úr sér
Það er gott þegar æstir menn sofa úr sér æsinginn, en alveg er það nú dásamlegt þegar látnir sofa úr sér lát.. látið? Allavega ...
Ágætt þetta með negrann í Þistilfirði sem Hugðir ritar um hér að ofan.
Ég var að ræða þetta við kunningja minn frá Laxárdal um daginn, þ.e. um þessa fyrirsögn, en það stóð ekki á svari hjá félaganum. "Já negrinn; ég man eftir honum!"