Jæja, hver vann ? Klórar sér í höfðinu
VG
Allavegana ekki F, svo mikið er ljóst.
Jæja, hver vann ? Klórar sér í höfðinu
Sigurvegari kosninganna er nokkuð augljóslega Ástþór Magnússon og Lýðræðishreyfingin; það hlýtur hver heilvita maður að sjá að atkvæði sem var ekki greitt Ástþóri er ætlað sem þögul mótmæli gegn Ríkisútvarpinu sem hleypti honum hvergi nærri kosningaumræðum, enda segir hann sjálfur niðurstöðuna fyrst og fremst vera áfellisdóm yfir Ríkisútvarpinu sem hefði ekki sýnt málefnum hreyfingarinnar jafn mikla athygli og öðrum framboðum. (Sjá hér)
Hvernig ætli það sé annars að anda með hausinn svona svakalega niðurgrafinn í sandinn?
Kannski er best að segja sem minnst um Ástþór kallinn. Hann gæti verið að lesa.
Ég tel nú að Ástþór hafi verið næst efnilegasti frambjóðandinn á eftir framsókn en ríkisútvarpið þaggaði bara niðrí honum.
Já, helv...RÚV....