Hmm..það má vel hugsa sér að mæta. Hugsar málið
En ef ég mæti með gítarinn?
Þá verða þarna a.m.k. 2 gestapóar sem ég fæ þann heiður að hitta í fyrsta skipti. Ljómar upp
En ef ég mæti með gítarinn?
Stærsta spurning er hvort þjer verðið með ónefndan rauðan takka Fölnar upp við tilhugsunina og hugsar upp leiðir til að endurheimta hann.
Hmm..það má vel hugsa sér að mæta. Hugsar málið
En ef ég mæti með gítarinn?
Jaaaáá. Sniðugt, þá mundi ég mæta með hljóðgerfilinn minn.
Ég mæti nokkuð örugglega á þetta þing.
Ég stefni á mætingu en stoppa líklegast ekki lengi, enda um vinsælt eldhúsáhald að ræða og nærveru minnar óskað í öðru teiti. En ég þarf hins vegar nánari upplýsingar um staðsetningu. Starir þegjandi út í loftið
Ég útiloka ekki að mæta, fáist til þess leyfi hjá yfirvöldum.
Fyrst sekkjapípuleikur verður bannaður, þá kem ég ekki.
Ég er búinn með drykkjupeningana þrjá mánuði fram í tíman, maður veit þó alldrei...
Ég stefni á mætingu en stoppa líklegast ekki lengi, enda um vinsælt eldhúsáhald að ræða og nærveru minnar óskað í öðru teiti. En ég þarf hins vegar nánari upplýsingar um staðsetningu. Starir þegjandi út í loftið
Þá þurfum við að borða allar ristaðar brauðsneiðar fyrri hluta partýsins, því eins og allir vita er ekki hægt að borða ristað brauð án þess að hafa ostsneiðar.
Annars hyggst ég mæta.
Ég er búinn með drykkjupeningana þrjá mánuði fram í tíman, maður veit þó alldrei...
Þú hlýtur að geta drukkið eitthvað annað en peninga Skabbi.

Er þetta hótun um að þjer mætið ef allar ristaðar brauðsneiðar verða ekki borðaðar í fyrri hluta partýsins ? Klórar sjer í höfðinu
Ég er búinn með drykkjupeningana þrjá mánuði fram í tíman, maður veit þó alldrei...
Þú hlýtur að geta drukkið eitthvað annað en peninga Skabbi.
Það verður ekkert annað drukkið en Evruvíti þetta kvöld... nei annars, var að frétta að ég kæmist ekki þetta kvöld, en ég verð með ykkur í vínanda...
Hér berast bæði góðar fréttir og slæmar fréttir. Því miður er það víst svo að nánast ómögulegt er að finna dagsetningu sem öllum hentar. Bölvar því að ekki allir þingsgestir ráði yfir tímavélum
Annars þá hef ég sent Bleika ostaskeranum póst með upplýsingum um staðsetningu, en út frá þeirri staðreynd að hann er enn blár (pósturinn þá, ekki ostaskerinn - eins og gefur að skilja er hann vitaskuld bleikur) mín megin má ráða að hann er ólesinn enn. Tsk tsk.
hnussar Það gremur mig að téð Þarfaþing skuli vera akkúrat þennan dag. Ég hefi verið einn heima (og þar af leiðandi sjálfráða) í tvo og hálfan mánuð. En auðvitað þarf Þarfaþingið að vera kvöldið áður en ég þarf að vera mættur út á flugvöll upp úr klukkan sex að morgni. hnussar enn hærra
Það eru allar líkur á því að ég mæti og verði ekki alveg þurr að innan. Hexia hefur það til umhugsunar að mæta en hún ætlar að vera alveg skraufþurr að innan. Má mæta með blokkflautu?
Mér finnst þetta innlegg heldur persónulegt, ef ég á að segja eins og er, og síðasta setnignin beinlínis grótesk.
Tjahh, á ekki bara að færa þingið yfir í júní? Þegar uppáhalds aulinn ykkar er á fróni?