Ég fer í orlof á þreföldum launum í örskamman tíma og þið setjið landið á hausinn!Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hver ber ábyrgð!?
Ábyrgð ?! Hvað er það ? Blístrar sakleysislega
Hjer er allt í himnalagi og allir að stórgræða, sbr. þetta:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=10484
Ljómar upp og stofnar 120 ný eignarhaldsfjelög
Þegar kötturinn fer að heiman leika....
stígur út úr ferhyrning merktum Bankalútíu
Þetta er ég að tala um!
Ég er ekki viss um að ég ráði við þessa ábyrgð og því mun ég ekki reyna að berja hana.
stofnar 3 fyrirtæki og nefnir þau Mikill, Hákon og Lögfræðiþjónusta Andskotans (LA)
Lætur Mikill lána Hákon 600 milljarða með veð í Vigdísi Finnbogadóttur
Lætur Hákon kaupa Mikill fyrir 600 milljarðana
Biður um gjaldþrotaskipti fyrir Mikill
Lætur LA sjá um gjaldþrotaskiptin og innheimtir ekkert frá Hákon
Slítur félaginu Hákon og lætur allar eigur þess ganga til sín
Þarna þekki ég þetta.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Hvað sé ég? Mikill Hákon snúinn aftur! Er ég þá ekki lengur keisari?
NEI, ÉG ER KEYSARI
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Hvað er að ske? Nótt hinna dauðu að hefjast?
Dísis. Það nennir enginn að hlusta á þig, Hübner.
Svipast um eftir Zoidberg
NEI, ÉG ER KEYSARI
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Hrökklast afturábak og hrasar við
Óvinir vorir hafa snúið aftur og eru eigi dauðir eins og talið var Fölnar upp.
Setur öll gjöreyðingarvopn í viðbragðsstöðu
Erum við að hverfa aftur til upphafsáranna? Ljómar upp
Stelur listanum yfir óvini ríksins breytir honum aðeins og skilar aftur
Hleypur logandi hræddur til apanna sinna sem bræða hjörtu
Berjist apar! Berjist til síðasta apa!
skipar öpunum að fara og bræða hjarta Hafþórs
Er komin stjórnarkrísa í Baggalútíu?
Og enn mikilvægari spurning - hvernig má græða á henni, ef svo er?
Íhugar að láta keisaraefnin slást í búri til dauða og selja aðgöngumiða
Ég sé að Mikill Hákon hefur ekkert breyst frá því í gamla daga. Ljómar upp
Gerir skelfilega uppgötvun
Það tilkynnist hjer með opinberlega að alvarlegt ástand kann að blasa við í stjórnkerfi Baggalútíu. Oss hafa borist leynilegar upplýsingar þess efnis að í ráðherra- og/eða embættismannakerfi Baggalútíu kunni að leynast 'moldvarpa' Flettir náfölur gegnum listann ógurlega yfir óvini ríkisins.