— GESTAPÓ —
Formleg rannsókn á tilvist þráðar
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/3/09 23:01

Sje einhver að lesa þetta tókst oss að stofna þennan þráð. Sje enginn að lesa þetta tókst hugsanlega að stofna þráðinn en eigi eru til staðar nægjanlegar upplýsingar til að skera úr um það; það mistókst því hugsanlega.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
albin 22/3/09 23:03

Þér tókst hugsanlega ekki að stofna þennan þráð. Ég get a.m.k. ekki lesið þennan þráð því ég hef eigi fundið hann enn.

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 22/3/09 23:04

‹Er ekki að lesa neitt núna, heldur horfir stíft á lyklaborðið›

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 22/3/09 23:10

Hafi þessi þráður verið stofnaður, hvernig getum við sannreynt að það hafi í raun og veru verið Vlad sem stofnaði hann?

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/3/09 23:12

Útvarpsstjóri mælti:

Hafi þessi þráður verið stofnaður, hvernig getum við sannreynt að það hafi í raun og veru verið Vlad sem stofnaði hann?

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›
Þetta er reyndar alveg skelfilegur möguleiki - að óvinir ríkisins hafi bæði náð að stofna þennan þráð og koma fyrir minningum í heilabúi voru þess efnis að vjer höfum stofnað hann ‹Fölnar upp›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hóras 22/3/09 23:30

Til öryggis er best að gera ráð fyrir hinu versta

Þráðurinn var stofnaður án afskipta Hæstvirts Forseta

Ég legg hér formlega fram tillögu þess efnis að allir Gestapóar grípi til vopna - byrgi heimili sín - hamstri matvæli - og treysti engum sem ekki getur framvísað lögbundu skírteini sem staðfestir stöðu þeirra sem Gestapóa, stimplað, í þrígang hið minnsta, af embætti Forseta

Eigandi einnar af níu sálum Tigru • Eigandi Armani spennutreyju • Fjölmiðlaráðherra • Heilagur Ári Hreintrúarflokksins • Ekki hamstur
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 22/3/09 23:47

Óeirðir ?
‹Ljómar upp›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 23/3/09 00:02

HMMM.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
albin 23/3/09 00:15

‹Grípur til Vodka›

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 24/3/09 13:02

Hóras mælti:

Til öryggis er best að gera ráð fyrir hinu versta

Þráðurinn var stofnaður án afskipta Hæstvirts Forseta

Ég legg hér formlega fram tillögu þess efnis að allir Gestapóar grípi til vopna - byrgi heimili sín - hamstri matvæli - og treysti engum sem ekki getur framvísað lögbundu skírteini sem staðfestir stöðu þeirra sem Gestapóa, stimplað, í þrígang hið minnsta, af embætti Forseta

Vjer erum sammála þessu. Vjer teljum oss reyndar muna að það höfum verið vjer sem rituðum upphafsinnlegg þráðarins en vjer munum eigi lengur nákvæmlega orðrjett hvað þar stendur og m.a.s. ekki alveg 100% hvað stendur þar efnislega. Það gæti bent til að um sje að ræða minningu sem komið var fyrir í heilabúi voru af óvinum ríkisins en að sú aðferð sem þeir notuðu við það hafi eigi náð algjörri fullkomnun. Líklegast er þó að vjer höfum ritað upphafsinnleggið en eins og sjá má af þessu er það samt ekki alveg öruggt ‹Byrgir til öryggis forsetahöllina og sankar að sjer enn meiri vopnum en þegar voru til staðar í forsetahöllinni›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 24/3/09 13:59

‹Hamstrar hamstra›

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: