Hexía mín ,það er aldrei of seint að höfða dómsmál. Go for it.
Það er satt, ég sé það núna. Ég hlýt að fá þetta hótel þegar ég sýni dómaranum fram á að það sé engan veginn hægt að malla alminlegt kakó með svona ör á hnénu...

Og Úbbi, hversu tregur þarftu að vera til að meiða þig þrisvar á borvél ?Glottir eins og fífl
Ég var að vísu sofandi og það var læknir sem stýrði borvélinni.
Ég er líka með ör á öðru hnénu. Það orsakaðist af risastórum glervegg sem ákvað að vera fyrir mér þegar ég hljóp fimm ára gömul á eftir pabba að sækja ferðatöskurnar þegar við vorum nýbúin að tékka okkur inn á þetta fína strandhótel á Flórída. Mér er sagt að ég hafi kastast tvo metra afturábak eftir höggið, sem var ágætis heppni því annars hefði ég líklega fengið glerið niður á mig eins og fallöxi (sem hefði getað orsakað ýmislegt verra en ör á hnénu).
Hjónin sem áttu hótelið gerðu allt fyrir mig og voru alltaf að snúast í kringum mömmu og pabba. Þau hafa vafalaust verið hrædd um að missa hótelið í málsókn, sem skaðabætur fyrir að skemma útlit ungu stúlkunnar og framtíðarmöguleika hennar í hnjáa-fyrirsætubransanum. Sem betur fer fyrir þau fannst foreldrum mínum hnéð á mér ekki vera svo merkilegt.
Ég held að þetta sé lygasaga.
Ég held að endur hafi ekki hné.

Það er algengur misskilningur. Endur hafa reyndar 7 hné. Eitt á hverjum fæti.
Sagði ég 7.. afsakið mig ég meinti átta auðvitað.
Bjáninn ég.
En þó eru einhverjir sem segja að áttunda hnéð sé í rauninni ekki hné heldur auka olnbogi en heimildum ber bara ekki alveg saman.
Vá... "Áttunda hnéið"... hljómar það ekki eins og titill fyrir bíómynd... þar sem er alltaf þoka í landslaginu, stór og gömu tré og steinrústir... og leikarar stara úti loftið framhjá hvor öðrum og segja eitthvað dularfullt og spekingslegt... skrifar handrit
hringir í Aki Kaurismäki
En þó eru einhverjir sem segja að áttunda hnéð sé í rauninni ekki hné heldur auka olnbogi en heimildum ber bara ekki alveg saman.
Minn kæri... það er ekki á öndum... heldur höndum. Og þetta heita liðamót eða kjúkur, en ekki hné.

veltist um af hlátri Pant ekki koma til ykkar ef þið gerist skottulæknar í sveitinniGlottir eins og fífl
Ég er líka með ör á öðru hnénu. Það orsakaðist af risastórum glervegg sem ákvað að vera fyrir mér þegar ég hljóp fimm ára gömul á eftir pabba að sækja ferðatöskurnar þegar við vorum nýbúin að tékka okkur inn á þetta fína strandhótel á Flórída. Mér er sagt að ég hafi kastast tvo metra afturábak eftir höggið, sem var ágætis heppni því annars hefði ég líklega fengið glerið niður á mig eins og fallöxi (sem hefði getað orsakað ýmislegt verra en ör á hnénu).
Hjónin sem áttu hótelið gerðu allt fyrir mig og voru alltaf að snúast í kringum mömmu og pabba. Þau hafa vafalaust verið hrædd um að missa hótelið í málsókn, sem skaðabætur fyrir að skemma útlit ungu stúlkunnar og framtíðarmöguleika hennar í hnjáa-fyrirsætubransanum. Sem betur fer fyrir þau fannst foreldrum mínum hnéð á mér ekki vera svo merkilegt.
Ég held að þetta sé lygasaga.
Ég held að endur hafi ekki hné.
Það er algengur misskilningur. Endur hafa reyndar 7 hné. Eitt á hverjum fæti.
Sagði ég 7.. afsakið mig ég meinti átta auðvitað.
Bjáninn ég.
Hvar eru þeir sex fætur sem ekki vísa u.þ.b. niður og eru notaðir til gangs og/eða sunds ? Klórar sjer í höfðinu
Hexía mín ,það er aldrei of seint að höfða dómsmál. Go for it.
Það er satt, ég sé það núna. Ég hlýt að fá þetta hótel þegar ég sýni dómaranum fram á að það sé engan veginn hægt að malla alminlegt kakó með svona ör á hnénu...
Að ógleymdu því stórkostlega tilfinningalega umróti sem þetta hlýtur að hafa valdið alla tíð upp frá þessu og sem samanlagt í tíma verður auðvitað meira eftir því sem það hefur staðið lengur sem þýðir hækkandi skaðabætur eftir því sem lengri tími er liðinn frá atvikinu.
Hvar eru þeir sex fætur sem ekki vísa u.þ.b. niður og eru notaðir til gangs og/eða sunds ? ‹Klórar sjer í höfðinu›
Faldir undir fiðrinu auðvitað.
Ég er víst með hné. En ég er náttúrlega norn. Frænkur mínar á Læknum hafa engin hné sem ég hef séð... en það gæti auðvitað verið vegna þess að þau séu falin undir fiðrinu eins og Andþór segir.
Og Vlad, það er auðvitað hárrétt hjá þér að tilfinningarótið síðustu þrjá áratugina hefur sett gríðarlegt mark sitt á mig. Sérstaklega hellist yfir mig vonleysistilfinning þegar ég horfi á kuðunginn sem hjónin gáfu mér, mér til huggunar. Þó þetta hafi verið stærsti kuðungur sem ég hafði séð í þá daga, þá er hann til ævarandi skammar og áminningar um hótelið sem ég hefði átt að fá í staðinn. Snöktir