Hné einhver niður?
Klórar sér í höfðinu
Ég er sammála, reyndar finnst mér allt mannfólk vera með yfirmáta ljót hné. Hinsvegar eru Elgir með gullfalleg hné, gott að einhver hafði orð á þessu...Ljómar upp
Þú hefur væntanlega miðað við Harald Austmann en ljótleiki hnjá hans er aðeins hálfur þar eð annað er af.
Alltaf tekst Hlebba að vera þessi lifandis ósköp bráðfyndinn. Eins og hann er nú illa innrættur og leiðinlegur.
Annars legg ég til að titli þráðarins verði breytt í samræmi við núgildandi stafsetningareglur.
Þú hefur væntanlega miðað við Harald Austmann en ljótleiki hnjá hans er aðeins hálfur þar eð annað er af.
Alltaf tekst Hlebba að vera þessi lifandis ósköp bráðfyndinn. Eins og hann er nú illa innrættur og leiðinlegur.
Annars legg ég til að titli þráðarins verði breytt í samræmi við núgildandi stafsetningareglur.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Þú ert fyndinn!
Sýnir á sér hnén
Eru býflugur ekki með fegurstu hné allra dýra? Samanber hinn enska frasa The bee's knees?
Veit ekki. Það þykir ekki mjög fínt að vera bee's knees maður nú til dags.
Er annars ekki mögleg skýring á uppruna frasans sú að hér sé um að ræða einhvers konar misskilda afdælafbökun af business (beesness = bee's knees)?
Það er svona um það bil það sem ég var að reyna að segja í síðasta innleggi. Semíkomma. Svigi lokast.
Ekki þykir nú flottara að vera Bee Gee's í dag.
Annars er ég með svaka ljót hné, en ég segi eins og laufið, úlnliðir mínir bæta það upp umsvifalaust.
Ég er með einstaklega falleg hné sem leka ekki.
Ég er með glæsilegar táneglur...
Ja ég er nú með gullfalleg hné, allavega eitt því það er ljótt ör á hinu.
Ég er líka með ör á öðru hnénu. Það orsakaðist af risastórum glervegg sem ákvað að vera fyrir mér þegar ég hljóp fimm ára gömul á eftir pabba að sækja ferðatöskurnar þegar við vorum nýbúin að tékka okkur inn á þetta fína strandhótel á Flórída. Mér er sagt að ég hafi kastast tvo metra afturábak eftir höggið, sem var ágætis heppni því annars hefði ég líklega fengið glerið niður á mig eins og fallöxi (sem hefði getað orsakað ýmislegt verra en ör á hnénu).
Hjónin sem áttu hótelið gerðu allt fyrir mig og voru alltaf að snúast í kringum mömmu og pabba. Þau hafa vafalaust verið hrædd um að missa hótelið í málsókn, sem skaðabætur fyrir að skemma útlit ungu stúlkunnar og framtíðarmöguleika hennar í hnjáa-fyrirsætubransanum. Sem betur fer fyrir þau fannst foreldrum mínum hnéð á mér ekki vera svo merkilegt.
Ég er með 3 ör á öðru hnénu eftir borvél, ég veit ekkert eftir hvað örið á hinu hnénu er. klórar sér í höbbðinu
Hexía mín ,það er aldrei of seint að höfða dómsmál. Go for it.
Og Úbbi, hversu tregur þarftu að vera til að meiða þig þrisvar á borvél ?Glottir eins og fífl
Hann er með eindæmum tregur. horfir á glæsileg hnén á sjálfum sér Mín eru glæsileg, en það brakar fjandi mikið í þeim.