Kommon, er ég sá eini sem finnst þetta skemmtileg fyrirsögn?
Allavega, sem stríðsmangari Baggalútíska heimsveldisins ber mér skylda til að upplýsa ykkur um þau stríð sem að Baggalútía er að standa í eða stendur fyrir í augnablikinu, en þau fara mörg hver framhjá hinum venjulega borgara þar sem að það fer ekki mikið fyrir þeim.
En allavega, þeir sem við erum í stríði við:
BRETLAND
San Marínó
Ekki Færeyjar - Svona til tilbreytingar...
Íslenska krónan.
Hryðjuverk
Íslam, kristni og önnur trúvilla.
Eiturlyf (utan Baggalútíu).
Púertó Ríkó og Kúba
Babýlon.
Mafían
Sjávarfólkið
Hvergiland - þótt að við höfum reyndar ekki ennþá fundið það...
Júgóslavía - Hún er ekki nógu sundruð.
Vesturbakkinn (ekki Gaza)
Sömuleiðis stöndum við fyrir og sponsorum flest öll ef ekki öll stríð sem stunduð eru í Afríku um þessar mundir. Það er fátt skemmtilegra en að fylgjast með og veðja á það hvaða stríðsherra slátrar svona og svona mörgum og hvert hann ræðst næst. Sumir eru með veðhlaup og veðja á hesta og pöpúllinn tippar á leiki í enska boltanum, við erum með þetta, þetta er í raun bara eins og hvert annað áhugamál.
Annars er ég örugglega að gleyma einhverju. Þetta er allavega það helsta.
Sponsorum?
Hvergisland?
Takk kærlega fyrir þessa uppfærslu Don. Merkir samviskusamlega við stríðssvæðin á hnattlíkaninu sínu
Þakka þér fyrir Don. Þú ert mikil hetja og strategist og hefur lengi verið í bransanum. Án þín hefði síðari heimsstyrjöldin ekki verið framkvæmanleg.
Til að komast til Hvergilands þarf að ganga beint af augum í fimttu höfuðátt - en hún er ekki alltaf til
Ég gekk beint af augum og lenti bara uppi á Bakbrotsfelli eina ferðina enn. Aleinn.
Sponsorum?
Hvergisland?
Og hver annað áhugamál. Ekki gleyma því.
Annars gengur hryllilega í stríðinu við San Marínó. Það virðist sem að þar hafi verið fundnir arftakar Ástríks og Steinríks því að síðan við tókum Ítalíu á sínum tíma hafa þeir hrakið hverja leðurdvergalegíónuna á fætur annari á bak aftur! Ég vil ekki sprengja svæðið í loft upp því að þá er möguleiki á að galdraseyðið glatist, ég er viss um að það er þarna!
Til að komast til Hvergilands þarf að ganga beint af augum í fimttu höfuðátt - en hún er ekki alltaf til
Þér hljótið að minnast þess, að höfuðáttirnar eru átta: Upp, ofan, norður, niður, út, suður, hingað, og þangað.

Neibb - þær eru níu
Þú taldir upp áttir 1 til 4 og 6 til 9 - sú fimmta er yfirleitt ekki tekin með í þessa upptalningu enda ekki vitað hvort sé til að þeirri stundu
Ég gekk beint af augum og lenti bara uppi á Bakbrotsfelli eina ferðina enn. Aleinn.
Leiðrétting: við vorum tvö.
Til að komast til Hvergilands þarf að ganga beint af augum í fimttu höfuðátt - en hún er ekki alltaf til
Þér hljótið að minnast þess, að höfuðáttirnar eru átta: Upp, ofan, norður, niður, út, suður, hingað, og þangað.
Neibb - þær eru níu
Þú taldir upp áttir 1 til 4 og 6 til 9 - sú fimmta er yfirleitt ekki tekin með í þessa upptalningu enda ekki vitað hvort sé til að þeirri stundu
Þér eruð erfiðir.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann.
Hann er bara klárari en þú!
Nei. Setur gleraugu á Hóras Nú er hann gáfaður!Stekkur smæð sína
Hey já, við erum líka í stríði við hryðjuverk og sömuleiðis er hugmyndin að ráðast inn á Vesturbakkann, Ísrael má hirða Gaza.
Vjer leggjum síðan formlega til að hernaðaraðgerðum gegn Færeyjum verði hætt og þess í stað opinberlega lýst yfir stríði gegn Bretum (hafi það ekki þegar verið búið).
Hey fokk. Þetta hefur verið einhver villa í kerfinu...
Baggalútía hefur hér með opinberlega lýst yfir stríði gegn Bretum!
Ég held að það sé kominn tími á að vekja leðurdverganna! Hlewagastir sem hinn nýji konungur verður að sjá um það verk. Uppfærir listann
Ræsir leðurdvergana.
Það er stríð piltar! Við ætlum að hálshöggva Bretadrottningu fyrir sólarlag. Eða a.m.k. fyrir áramót.
Þið leðurhommarnir megið líka koma með. Við viljum fá alla sem **ttlingi geta valdið.
Gerir eliptonið klárt
Er einhver með formlegar tillögur um skemmtileg skotmörk ?