Það er í sjálfu sér virðingarvert.
Fræg í æsku, falin nú.
Filmustjarna Balta.
Hélt við Guðmund, gæra sú.
Gíslafóstran valta.
Fræg í æsku, falin nú.
Filmustjarna Balta.
Hélt við Guðmund, gæra sú.
Gíslafóstran valta.
Guðríður Símonardóttir (Tyrkja-Gudda)
?
?
Guðríður fóstra Gísla Súrssonar
Kemur ekki einhver með 3ja nafn til að hlewI fáist til að kíkja á þetta?
Rangur Gísli, galin drós.
Guðríður er villuljós.
Fræg í æsku, falin nú.: Hanna Valdís "(Hér sérðu Línu Langsokk.")
.....
Hélt við Guðmund gæra sú.: Harðsnúna-Hanna. ("Hélt við Gvend..")
.......
Fræg í æsku, falin nú.: Hanna Valdís "(Hér sérðu Línu Langsokk.")
Hanna María Karlsdóttir?
Hélt við Guðmund gæra sú.: Harðsnúna-Hanna. ("Hélt við Gvend..")
Hanna Birna hans Gísla Freys?
Mér sýnist þið vera með þetta í sameiningu.
Stöngina oft stökk hann við.
Stýrði frekju nætur.
Alþingi hann lagði lið.
Á Lútnum víst ágætur.
Stöngina oft stökk hann við. Gaukur á Stöng (Hann bjó reyndar á Stöng en það var einhver annar sem stökk á stöng, Hjalti?)
Stýrði frekju nætur. ?
Alþingi hann lagði lið. Gaukur Jörundsson umboðsmaður alþingis. (Hann var reyndar umboðsmaður þeirra sem voru óánægðir með alþingi)
Á Lútnum víst ágætur. ?
Sveinbjörn átti stöng og stökk (Þórarinn Eldjárn)
Stöngina oft stökk hann við. Gaukur á stöng
Stýrði frekju nætur. Gaukur Úlfarsson stýrði frekju Sylvíu Nóttar/Nætur
Alþingi hann lagði lið. Gaukur Jörundsson
Á Lútnum víst ágætur. Að sjálfsögðu Gaukurinn, Nýgræðingur með ritstíflu. Fæðing hér: 19/2/05 21:04 Síðast á ferli: 14/3/05 01:45.
Ég ætla að gefa hlewagastir ágætiseinkunn fyrir þetta.
(Þar sem Gauks saga Trandilssonar er glötuð, þá fáum við aldrey að vita hversu oft hann tók stökkið við bæinn sinn, en ég efast ekki um að hann hafi gert það.)
Snýr upp á sig. Jájá, það hafa sjálfsagt verið til ágætis prik á Stöng.
Ég var að reyna að hafa þetta ekki of létt. Skottast út af þræðinum
Fyrsti nafninn fyrir Danmörk réði.
Fræga rannsókn jöklum annar léði.
Þriðji hengdur, það fyrir vestan skeði.
Þriðja hefði fjórði leyst með gleði.
Veit ekki neitt. Dæsir
Fyrsti nafninn fyrir Danmörk réði. Sveinn tjúguskegg.
Fræga rannsókn jöklum annar léði. Sveinn Pálsson
Þriðji hengdur, það fyrir vestan skeði. Sveinn skotti Axlar-Bjarnarson
Þriðja hefði fjórði leyst með gleði. Andri lögfræðingur
Snilldargáta.
Ljómar upp