Þá legg ég til að fótbolti verði lagður niður og drykkjukeppni komi í hans stað.
Heldur árshátíðina á Ásláki
Ég styð líka tillögu Upprifins. Einnig legg ég til að allir Ólympíuleikar verði framvegis haldnir í þeim hinum sama alheimi og knattspyrnan fær til umráða. Ef við sendum allar hreyfifrekar íþróttir þangað, þá flýtir það fyrir dauða þess alheims og þar með dauða allra hreyfifrekra íþrótta. Þar með ætti vandamálið að vera úr sögunni fyrir fullt og allt. Ljómar upp
Það verður að gæta þess að aðeins hreyfifrekar íþróttir verði fluttar yfir.
Sumar hreyfifrekar athafnir eru að mínu viti nauðsinlegar fyrir viðgang og endingu okkar alheims.
Eigi eru þær æskilegar ef þær, að teknu tilliti til allra þátta, flýta fyrir dauða alheimsins.
Fyrr í þræði þessum ljetum vjer í ljós áhyggjur sökum lítilla viðbragða við þræðinum. Því gleður sá áhugi er hann nú vekur oss mjög enda gefur auga leið að eitthvað er flýtir fyrir dauða alheimsins varðar alla í alheiminum en eigi knattspyrnumenn eingöngu.
Hugmyndir um að búa til nýjan alheim eru svo auðvitað allrar athygli verðar Hefur samband við CERN.
Er ekki hætt við að aukin umferð um þráðinn flýti fyrir dauða alheimsins.
Pikkar innleggið inn eins hægt og auðið er
Heldur árshátíðina á Ásláki
Mætir á árshátíðina.
mætir með hattinn.
Mér er slétt sama um skák. Mér er bara illa við of mikla hreyfingu.
Er það þessvegna sem sívertsensetrið er að fyllast af börnum...Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Fyllast og fyllast... tvö börn? Og ekkert hefur bæst við síðustu átta árin? Jah, nema kötturinn, en hann telst varla með. Ég er nú orðin svo gömul að ég er áreiðanlega barasta búin að gleyma því hvernig stóð eiginlega á því að þessi börn birtust hérna... Klórar sér í höfðinu
Nú er komið í ljós það sem allir auðvitað vissu, þ.e. að EM í knattspyrnu ýtir miklu frekar undir dauða alheimsins en eitt stykki risaöreindahraðall. Leggjum vjer því formlega til að þeir sem mótmælt hafa þessum vísindatilraunum á vegum CERN mótmæli frekar risaknattspyrnumótum.
Eitthvað hef ég á tilfinningunni að það verði erfitt að snúa athygli þeirra annað.
Það þarf að finna leið til að sannfæra þá um að knattspyrna sje í raun og veru háþróuð og óvenjuleg aðferð til kjarneðlisfræðirannsókna.
Eitthvað eins og að boltinn tákni nifteind og markið róteind... eða... hm?
Rangstæður.