Hvernig eigum við eiginlega að vera klæddar á árshátíðinni?
Þemað er Undirheimar Baggalútíu. Ég hef velt fataskáp mínum fram og til baka og fundið ýmislegt spennandi en veit ekkert hvað passar best.
Eigum við að vera í ljótukallafélagsklædd eða spilavítisklædd?
Vera yfirnáttúrulegar, fullnægðar eða dónakerlingafélagslegar?
Eigum við að safna sérvettum eða vera kommúnistar?
Leika í erótískri klámmynd eða tefla?
Vera í megrun eða á útikamri?
Bíða eftir Godot eða höggva í herðar niður?
Gelgjur eða í slagsmálaklúbbnum?
Diskó Dj-assarar eða í Blámannaklíku?
Í leyniþjónustu eða húsasundi?
Í stuttu pilsi eða í bleik og bláu?
Það er ekki skylda að fara í búning. En, þeir sem vilja geta reynt að hanna eitthvað skemmtilegt útfrá þessum þráðum. Ljómar upp
Má ég ekki koma með uppástungu? Hvernig væri Þjóðbúningur Álandseyja ásamt strápilsi og sólgleraugum?
Kommúnistar er eiginlega eina lausnin. Við skulum ekki gleyma því að árshátíðin er á 92 ára afmæli Sovétríkjanna.
Skákmeistari og gelgja.... Fer það ekki bara vel saman?
Hrökklast afturábak og hrasar við
Undirheimarnir eru eini hluti Gestapósins sem vjer gjörþekkjum ekki. Lítur því út fyrir að vjer þurfum að kynna oss þá nánar en reyndar grunar oss að þeir sjeu það furðulegir að illmögulegt sje að líta nógu furðulega út eða gera eitthvað í anda þeirra á árshátíðinni svo vel sje. Það að gjöreyða óvart öllum alheiminum gæti þó verið í anda Undirheima Baggalútíu.
Ég ætla að mæta nýskeindur og fínn.
En undirföt Baggalútíu?
Kommúnistar er eiginlega eina lausnin. Við skulum ekki gleyma því að árshátíðin er á 92 ára afmæli Sovétríkjanna.
7. nóvember, xT, er einmitt afmæli kommúnistabyltingarinnar í Rússlandi. Hinsvegar voru Sovétríkin ekki stofnuð fyrren nokkrum árum seinna.
Ég held nú að ég hangi bara á bílastæðinu.
Kommúnistar er eiginlega eina lausnin. Við skulum ekki gleyma því að árshátíðin er á 92 ára afmæli Sovétríkjanna.
7. nóvember, xT, er einmitt afmæli kommúnistabyltingarinnar í Rússlandi. Hinsvegar voru Sovétríkin ekki stofnuð fyrren nokkrum árum seinna.
Kartafla, tómatur. Alltílagi, á 92 ára afmæli Sovét-Rússlands þá. Hvað um það, skál! Tx