Það tilkynnist hjer með opinberlega að með bæði innleggi þessu sem og þræði þessum óskum vjer hjer með formlega eftir inngöngu í Fjelag baggalútískra þráðarstofnenda.
Jafnframt teljum vjer koma til greina að þeir einir megi ganga í fjelagið er stofna þráð í þeim tilgangi að ganga í fjelagið (reglan er núna þannig) og einhvern annan þráð um eitthvert alveg ótengt málefni. Oss er reyndar ljóst að inngönguskilyrðin í fjelagið er óheimilt að ræða við kónga og presta en þar eð Andþór er hvorugt teljum vjer oss eigi hafa brotið lög/skilyrði fjelagsins um inngöngu með þessari tillögu.
Skál !
Fullur svona snemma dags?
Hvað er málið?
Skál!
xT
Formleg fyrirspurn til þess/þeirra er málið varða: Telst umsókn sú er efst kemur í þræði þessum samþykkt í ljósi skorts á virkni í þessum þræði ? Eða er málið fast í kerfinu vegna pappírsskorts, líkt og gerðist um tíma í öðrum svipuðum þræði ?