Ef til dæmis baggalutur, hotmail og facebook eru vefir. Er internetið þá kjallarakompa eða hellir þar sem vefirnir eru geymdir? Erum við þá kóngulær eða flugur?
Nei.
Baggalútur er ekki vefur, hvaða rugl er þetta?
Og svo erum við hætt að nota þetta ljóta orð 'intervefur' eða hvernig sem það nú er.
Nú notum við hið fallega orð 'gagnvarp'.
Stynur af orða-nautn
Internet... en veraldarvoð, sbr. snúrvoð? Glottir eins og fífl
Hver sleppti þessum inn um hliðið ? Klórar sér í höfðinu
Stofna nýja heimskulega þræði án þess að spyrja um leyfi.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þetta hét nú Upplýsingaofurhraðbrautin í minni barnæsku...
En internetið er bara bóla!
... og bólur þarf að kreista.
Já.
Já.
Ertu viskubrunnur sem er þurrausinn eða er viskurbrunnurinn fúll og mengaður?
Þetta hét nú Upplýsingaofurhraðbrautin í minni barnæsku...
Já, en svo voru nokkrir teknir fyrir of hægan akstur og þá var málið sett í nefnd. Það hefur enn ekki bólað á geinargerð.
Tja.. þessi viskubrunnur er bara ekki fyrir hvaða durg sem er að ganga í.
Mína visku verð ég bara
vel að spara líkt og álfur.
Annað þarft þú því að fara
þreytti litli aukasjálfur.
Hver sleppti þessum inn um hliðið ? Klórar sér í höfðinu
Stofna nýja heimskulega þræði án þess að spyrja um leyfi.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hvað er svona heimskulegt við þennan þráð?
Er heimskulegt að nota orðið internet, prófaðu þá að setja gagnvarpið eða upplýsingahraðbrautina í staðin.
Ég biðst forláts ef ég hef troðið mér inn á eitthvað einkasvæði ykkar.
Allt í góðu, farðu bara úr skónum.
Drepst úr táfýlu
Nei, Éns!
Farðu strax aftur í skóna!
Tja.. þessi viskubrunnur er bara ekki fyrir hvaða durg sem er að ganga í.
Mína visku verð ég bara
vel að spara líkt og álfur.
Annað þarft þú því að fara
þreytti litli aukasjálfur.
Þá veit ég ástæðuna, þú ert fúll maður.
Hefðirðu ekki getað sleppt því að svara, í stað þess að vera með leiðindi?