— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 112, 113, 114 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/8/04 00:52

Eina sá ég rauða rós
rétt við bæjar vegginn,
Gefðu einni gæfri drós
góð verður við stegginn

Rómantískur rasar hér
röflar tóma steypu

segi svona Krummo minn

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 8/8/04 01:15

Rómantískur rasar hér
röflar tóma steypu
í angist sinni fíflið fer
för með hreinni sneypu.

Full af stolti, hún er hýr
hommaborgin okkar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 8/8/04 01:24

Labba niður Laugaveg
lesbíur og hommar
Þar sem áður þekkti ég
að þúsund gengu kommar.

Keflavíkurgöngur greitt
gékk ég forðum daga.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/8/04 01:29

Keflavíkurgöngur greitt
gékk ég forðum daga.
Vegna þess var vegi breitt
vinstrigöngu þvaga


Það er staðreynd: hér er her
herinn kannski sjálfur fer

Fer þá burtu fluguger
fegin þá mun dansa ber

Nató vildir ber'á brott
blessuð sé sú minning

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/8/04 01:40

Hundurinn minn heitir Snató
hann er aðili að Nató
Geltir og svo gefur frató
giska er þetta plató

Lóga skaltu lítinn hund
lagst hefur hann djúpt

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/8/04 01:48

Eftir sund var göndull Grettis
gasalega smár
Þessi saga finnst mér fettish
félagi minn knár

Eldinn fann og ylur kom
í útilimi smáa

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 8/8/04 14:55

Hitti Glám, þann grimma vom
með gríðarfýlu táa.
Horfði á klám fór og kom
kreisti dropa gráa.

Þráður langur ekki þrífst
þegar vantar fyrripart.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 8/8/04 17:40

Þráður langur ekki þrífst
þegar vantar fyrripart.
Arabi, sem einskis svífst
ætlaði að vera smart.

Hryðjuverk á þessum þræði
þráir hlewagastiR.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 8/8/04 20:06

Hryðjuverk á þessum þræði
þráir hlewagastiR.
Í Palestínu á prumpufæði
perlur fyrir kastir

Hrikalega var þetta vondur botn
versnar enn í fyrriparti

Ég er ekki með neitt &%$#& embætti á þessum /#&%$#& Lúti
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/8/04 20:50

Hrikalega var þetta vondur botn
versnar enn í fyrriparti
Hvað skal segja súrt og rotn-
ar seinni parta skarti

Hefjum kvæð'á hærra svið
hátt nú flæða partar

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 8/8/04 22:00

Hefjum kvæð'á hærra svið
hátt nú flæða partar
Láum æða innrímið
Öllum gæðum skartað

Þennan fjandans fyrripart
farið nú að botna!
Allt er löngu orðið svart
Einn ég sit og rotna

aloe mjúka gelið gott
gerir lúku fína

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 8/8/04 23:12

Aloe mjúka gelið gott
gerir lúku fína,
dömum öllum finnst það flott
þar með Fjóla og Stína.
------------------------------------------
Braust til vinnu vinasfár
vinnulúinn maður,

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 8/8/04 23:48

Braust til vinnu vinasfár
vinnulúinn maður,
geltur hokinn kerruklár
kynlífs ei til graður

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 8/8/04 23:51

Gefðu stund mér mætan svefn
mikil sprund ei dofnar

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 8/8/04 23:59

GRAÐUR ERTU GARPUR SNAR
GIGTVEIKUR OG LÚINN,
REINIR AÐ STINGA Í STÚLKURNAR
STEINHÆTTIR ALLVEG BÚINN.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 9/8/04 00:36

Gefðu sprund mér mætan svefn
mikil stund éi dofnar
ungar meyjar fyrir gefn-
ing fá er svefninn rofnar

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 9/8/04 00:39

Gefðu sprund mér mætan svefn
mikil stund éi dofnar
ungar meyjar fyrir gefn-
ing fá er svefninn rofnar.


Fer á kostum gamall karl
klórar sér á pungnum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 9/8/04 03:13

[Gamall] fer á kostum karl
klórar sér á pungnum
sem er mikill jullu-jarl,
jafnan haldið þrungnum.

Þó að heyrist þrumugnýr
þá er fátt til ráða

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 112, 113, 114 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: