Garún mundu það að bláar myndir eru bestar. Glottir eins og fífl
Velkomin Garún. Ertu nokkuð aukapersóna einhvers annars Gestapóa?
Sæll Herbjörn, nei ég er ekki aukapersóna, ætíð í aðalhlutverki hvar sem ég er.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Nei, það gat ekki annað verið en að þú værir ekta og gengheil, sem sjálf þurftir að kljást við draug eða einhvers konar aukapersónu hér forðum. Ég býð þig aftur velkomna og megi þér farnast vel hér á Gestapó.
Takk takk, það er svo gott að fá klapp á bakið, ekki allir sem skylja hversu stórfengleg aðalpersóna ég er í lífi þjóðarinnar.
Þar kom að því, Vigdís Finnbogadóttir er mætt.
Eða nei. Það er þarna svolítil stafsetningarvilla.
Er þetta þá ekki bara hann Bubi Morthæns...
Neibb ekki Vigdís, ekki Bubbi og ekki Dabbi. Það fer að þrengja að mér þið eru ódaulegir meistarar í að fletta ofan af fólki sem vill fara með veggjum.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Eins og Villi gamli í eyjum var vanur að hvísla:
Sjaldan hef ég þessa mey
skotið fyrir slysni
en andskotinn sjálfur segir 'NEI!'
því þetta eina sumar, já þettta um árið, sem ég ákvað nú að fara á rjúpnaveiðar. Já, þá einmitt skaut ég hana fyrir slysni.