bíða eftir taxa
Ég var að búa til gjafaöskjur undir alla skartgripina sem ég er búin að búa til handa fólki í jólagjafir. Það er ágætt að vera gullsmíðanemi í kringum jólin.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Koma aftur á mitt ástkæra Gestapó eftir alltof langa fjarveru.
Ég var að koma úr síðustu háskaför dagsins. andar léttar
Furða mig á því hví þessi gvöðsvolaða karaokekeppni sé ekki byrjuð.
Var á jólahlaðborði með æðislega fólkinu sem ég vinn með... djöfull sem ég á eftir að sakna þess...
Lesa ástarsögu.
Ég var að reyna að slíta lærin á mér frá eldhússtólnum sem ég sit á. Minnið mig á að sitja hér aldrei aftur á brókinni.
Óska þess að ég byggi hjá pabba.
Eða amk að systir mín væri flutt út frá mömmu.
Kemur þér ekki við! Hleypur á næsta þráð
Ég var að ljóma upp yfir því að sjá Barbie hérna aftur.
Ég var að gera við bíl. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég var að flytja nettenginguna mína á nýjan stað ásamt vefþjóni.... já og annað af mínum eigum. Ég ætti kanski að halda áfram við að flytja...
Ég var að fara í gegnum háan stafla af sokkabuxum og velta því fyrir mér hvort ég ætti einhverjar sem ekki væru götóttar og afhverju í ósköpunum ég henti ekki sokkabuxum þegar ég er búin að stinga gat á þær.
Ég var að velta fyrir mér hversu oft einhver hefur fundið upp sokkabuxur sem ekki kemur gat á við það eitt að ganga í þeim og hverjir það séu nákvæmlega sem ráða svoleiðis menn af dögum.
Úff nákvæmlega!
Svo hjálpa klærnar reyndar ekki.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Ég var að kaupa sælgæti, nammidagur sko.