Krossgata er svo smitandi góð að ljón og hýenur sem koma nálægt henni gerast grasbítar.
Krossgata er svo gáfuð að öll ráð önnur en hennar virðast óráð.
Krossgata er svo falleg og björt að að englar sýnast skítugir við hlið hennar.
Andþór er það næs að ég nenni ekki einu sinni að uppnefna greyið. Og þá er mikið sagt!
Jarmi er hreinskilinn og hress. Eðalblanda sem getur ekki klikkað. Svo var hann búinn að sjá út mafíuna í mafíu 9 þó hann væri á hliðarlínunni. Jarmi er eldklár! xT
Æji, ég laug... hmmm... hvernig skrifar maður það orð... "laug" er þetta rétt?
Jæja, allavegana, ég plataði, ég nennti að uppnefna hann. En ég nennti því bara vegna þess að hann er topp klassa gaur sem á mína fullu athygli skilið og gott betur.
Skál Andþór!
Ríkisarfinn er svo frábær að enginn sem þekkir hann í raun og veru getur sagt eitt styggðaryrði við eða um hann.
Andþór er skemmtilegur, og einn af þeim fáu sem hefur fengið mig til þess að hlæja upphátt.
Ákaflega gaman er að koma Aulanum til að hlæja. Hlátur hennar yljar sálinni. Hún er líka sjálf svo skemmtileg að það er ekki annað hægt en að hlæja með henni.
Andþór er kurteis mjög og gjarn á að afsaka sjálfan sig.
Þarfi er hið mesta ljúfmenni sem engum getur verið illa við. Hann er hinsvegar of gáfaður til að það geti talist hollt.
Tígra er sólargeisli Gestapóa. Hún er ein af örfáum sem kemst upp með hvað sem er því öllum líkar við hana.
Andþór er með falleg eyru.
Altmuligmanden er mjög svipsterkur! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Sloppur er afskaplega vel klipptur ungur maður. Og á gullfallegt viðhengi í þokkabót.
Aulinn er afskaplega hreinskilinn. Þó hún sé yndisleg og þrælklár, vona ég að hún muni ekki skrifa minningargrein um mig að mér látnum.