Matargerð og myrkraverk,
mig þau heilla hvorugt.
reima alltaf upp í kverk,
undir nefi horugt.
Bjart er yfir Breiðfirði,
bátar dorma í nausti.
Bjart er yfir Breiðfirði,
bátar dorma í nausti.
-Skötnum búbót skreið yrði
ef skipin veiddu að hausti.
Ég á í draumi unaðsstað
austan Bengalflóa.
Ég á í draumi unaðsstað
austan Bengalflóa.
Sálarinnar heimahlað
er handan feigðarsjóa.
Afslátt fá sem aurinn eiga
almúginn greiðir í topp.
Þú átt væntanlega við fyrri línu í fyrripartinum mínum Billi. Ég hélt að þetta slyppi.
Jæja, höfum þetta svona:
Afslátt fá sem aurnum hampa,
almúginn greiðir í topp.
(Ofstuðlun.)
Afslátt fá sem aurinn eiga
almúginn greiðir í topp.
Verðkönnuðir vísast mega
varast slík endemis flopp.
Afslátt fá sem aurnum hampa,
almúginn greiðir í topp.
Hann rænir því í ljósalampa
leggja þarf sinn kropp
Krónan stendur sterk í dag,
stöðugt vextir hækka.
Krónan stendur sterk í dag,
stöðugt vextir hækka.
Útgerð fær á Fróni slag
framlegðin að lækka.
Kaldur er hann kári
kyndugur og þver
Kaldur er hann kári
kyndugur og þver.
Svalur ansanas ári
úti stend ég ber.
Synt hef yfir Ermasund
og Ísafjarðardjúp.
Synt hef yfir Ermasund
og Ísafjarðardjúp.
Stórum við það léttist lund
að leggja höfin gljúp.
Hausverk valda heilabrot
hlaupa frá mér orðin
Hausverk valda heilabrot
hlaupa frá mér orðin
Komið er í algert þrot
allur vísnaforðinn.
Sól tér bráðum sortna fer
sígur fold í marinn.
Ekki veit ég hvaða hamfarir eru þarna á ferðinni né hvaða land er að sökkva í sæ.
En hvað með það.
Sól tér bráðum sortna fer
sígur fold í marinn.
-Fram á völlinn hleypur hér
hagyrðinga skarinn.
Ætli foldin upp svo rísi
árla næsta dags?
Ætli foldin upp svo rísi
árla næsta dags?
Allan dag svo að hún lýsi
allt til sólarlags.
Nútíminn er trunta tóm
telur Þursaflokkur.
Nútíminn er trunta tóm
telur Þursaflokkur.
Geng ég hann á skálda skóm.
-Skilur þetta nokkur?
Lífið gengur út á eitt;
allir vilja græða.
Nútíminn er trunta tóm
telur þursaflokkur.
Tannlaus sínum geyflar góm
Gölli spólurokkur.
Of, seinn ,
+
Lífið gengur út á eitt
allir vilja græða.
Aðrir mega ei nefna neitt
nísku púkar hræða,.
Grímsa undir Gróa hamast
gæist vinstri fótur upp,
Kerla gírug yfir amast
agalega litlum stubb(h). vanda framburðinn
- færði aðeins til hjá lappa - biðst velvirðingar
Bjórinn sumir brugga heima
bíða svo í angist - úbbz, þetta orð var leiðinlegara viðureignar en ég hélt...
Bjórinn sumir brugga heima
bíða svo í angist
Með dropanum hef dreymt að gleyma,
drukkið stút og hann kysst.
Skrambans, fjandans, bölvað basl
að botna svona rímorð.
Skrambans, fjandans, bölvað basl
að botna svona rímorð.
ef ét ég mikið nacho nasl
nokkur frem ég ný morð
ekki skildi skella hér
skrítnum fyrri pörtum
ekki skildi skella hér
skrítnum fyrri pörtum[/quote]
Illa færi fyrir mér,
á fáki kolasvörtum.