Andþór er besti nýliði sem hægt er að hugsa sér, hann er svo góður að núna dettur engum í hug lengur að hann sé nýliði.
Vigdísi getur farið fram, hún á til dæmis eftir að finna gleðina sem fylgir því að nota sviðslýingar og sértákn.
;)
Nýliði! Vigdís er nýliði sem á eftir að læra fljótt og vel að hér notum við ekki tilgangslaus greinarmerki.
Upprifinn er allra póa færastur í orðsins list og ætti að vera leikritaskáld. Svo er hann líka góður kennari.
Regínu væri ég til í að kaupa og hafa fyrir mömmu, svo góð er hún.
Vigdís kann að velja fyrsta innleggið sitt vel. Ljómar upp
Ég myndi samt stroka út þennan broskall áður en einhver sér þetta. Broskallar eru kryptonít í augum gestapóa
Aulinn er skarpgreind og eru innlegg hennar alltaf skemmtileg.
Afhverju látið þið svona við mig? Er þetta kannski barnaland?
Auli notaði einnig tákn hins ílla svo ekkert hrós heldur fyrir hana.
Hundsar bullið
Jarmi er svo fyndinn að það ætti að ráða hann til starfa á þunglyndissjúkrahúsum.
Blóðugt er svo gáfuð og frumleg að hún ætti að stjórna heiminum alein.
Upprifinn er eins og Galaxy súkkulaðimoli. Að utan er hann harður og flottur en að innan gómsætur og mjúkur. Himneskt!
Þegar blóðugt ritar svo mikið sem einn staf hér inn flykkjast þangað allir hugsandi menn!
Andþór er svo mikill snillingur hins ritaða og talaða orðs að allt sem hann segir og skrifar fer í bækur þær sem geyma helstu perlur menningarsögunar.
Upprifinn er sú manngerð sem leiðir, við hinir fylgjum á eftir.
Andþór er svo mikið gull af manni að það mælist ekki í karötum.
Blóðugt notar fallegt orðalag
Næturdrottningin er virkilega góð í að segja fallegt um fólk en langbest í að segja eitthvað fallegt um hann Nermal og nákvæmlega það er einmitt það dásamlegasta og yndislegasta við Næturdrottninguna.
Upprifinn er eins og sólarlagið - maður bara fær ekki nóg.