Stekkur hæð sína af einskærri kæti
Mikið er jég nú sæll með það! Hvar skrái jég mig? Og kostar eitthvað? Mig vantar upplýsingar!
Brestur nú í óstöðvandi grát
Jéheg missti af Rafmælinu mínu... Annað árið í röð!!
Fleygir sjér í gólfið og grenjar úr sjér augun
Skyldi einhver hafa munað eftir mjér?
Það þykir mér mjög líklegt.
Annars þá eru upplýsingar um árshátíðina ekki alveg komnar á hreint... það mun kosta e-ð en upphæðin ekki komin fram.
Andar mikið ljéttar eftir síðasta innlegg Tigru, sem og lestur Rafmæliskveðja
En, hvernig er það, fylgist jég með hjér?
Þú getur gert það... en ég myndi frekar fylgjast með hér:
Jég geri það!
Margskráir þráð úr síðasa innleggi Tigru sem uppáhald, viðhald og aðhald, sem og þennan þráð til öryggis
En, hvað hefir annars gerzt í fjarveru vorri?
Það er nú meira en lítið skal ég segja þér!
Þú verður eiginlega bara að ráfa um og skoða breytingarnar. Getur skoðað nýja torgið í Baggalútíu og Turtildúfuhöllina.
Síðan held ég að embættislistinn hafi e-ð örlítið breyst.
Síðan eru komnir nokkrir bráðefnilegir nýliðar... þar ber helst að nefna Andþór, Huxa og Óskar Wilde.
Engar efnilegir kvenkyns nýliðar? Jég spyr einungis, þar sem sorgarárið um hana Hundslappadrífu mína er liðið og jég er að verða örlítið einmana.. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Sólarrafhlaða sem geimfarar unnu að við alþjóðlegu geimstöðina, ISS, rifnaði í dag þegar verið var að færa hana og kanna sérfræðingar bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, nú skaðan með því að skoða myndir af rafhlöðunni. Rafhlaðan starfar enn eðlilega, og hefur einn sérfræðingurinn sagt að það sé það mikilvægasta, svona hlutir þurfi ekki að líta vel út.
Ofangreint las ég á falsmiðlinum mbl.is og varð hugsað til tímavélarinnar og ætla bara rétt að vona að þessi tiltekna rafhlaða sé ekki mikilvægur hlekkur í virkni tímavélarinnar. Annars finnst mér gæta nokkurra fordóma hjá sérfræðingnum í garð rafhlöðunnar. Hvernig heldur hann að einni illa útlítandi rafhlöðu líði meðal hinna fallegu?!
NASA væri alveg trúandi til að stela hlutum úr tímavjel vorri. Á það bæði við um Geimferðastofnun Bandaríkjanna og NASA við Austurvöll Sendir njósnara á báða staðina.
Engar efnilegir kvenkyns nýliðar? Jég spyr einungis, þar sem sorgarárið um hana Hundslappadrífu mína er liðið og jég er að verða örlítið einmana.. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það er náttúrulega elgurinn... hún álfelgur.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að óleystum vandamálum í tímavjelinni hefur fækkað verulega. Er oss nú einungis kunnugt um 6541 vandamál er leysa þarf svo vjer getum skoða árshátíðina fyrirfram.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að óleystum vandamálum í tímavjelinni hefur fækkað verulega. Er oss nú einungis kunnugt um 6541 vandamál er leysa þarf svo vjer getum skoða árshátíðina fyrirfram.
Afhverju kemuru ekki bara úr framtíðinni og segir þér hvernig þú lagar þetta?
Eitt helsta lögmál tímaferðalaga er að stórhættulegt getur verið að hitta sjálfan sig. Ráðleggjum vjer því gestum árshátíðar að forða sjer hið snarasta sjái þeir oss tvöfaldan á árshátíðinni og taka eigi þá áhættu að gera ráð fyrir að áhrifum áfengis sje um að kenna. Í versta falli gæti nefnilega orðið sprenging er gjöreyðir öllu innan u.þ.b. 50 km radíuss.
Ekki gera ráð fyrir því. Það hefur enn ekki komið fram hvort til standi að færa Mosfellsbæ til áður en árshátíðin verður haldin.
Eitt helsta lögmál tímaferðalaga er að stórhættulegt getur verið að hitta sjálfan sig. Ráðleggjum vjer því gestum árshátíðar að forða sjer hið snarasta sjái þeir oss tvöfaldan á árshátíðinni og taka eigi þá áhættu að gera ráð fyrir að áhrifum áfengis sje um að kenna. Í versta falli gæti nefnilega orðið sprenging er gjöreyðir öllu innan u.þ.b. 50 km radíuss.
Þetta þarf ekki að vera mikið vandamál, því að í framtíðinni veistu hvar þú varst í fortíðinni.. Þannig getur þú í óliðinin framtíð komið í þáliðna fortí og forðast þá staði og þær stundir er þér líðandi nútíð flækist um.