Kæri Forseti.
Mig langar að benda yður á að síðastliðinn vetur gerði Krumpa mig að hirðskáldi sínu, þessi nafnbót mín hefur af einhverjum ástæðum ekki ratað inn á listann hér á fyrstu síðu þessa þráðar og þykir mér það miður.
Mér yrði það til mikillar gleði að þér gerðuð yður það ómak að færa þennan lítilfjörlega titil minn til bókar svo að hann gleymist ekki þegar netfornleifafræðingar framtíðarinnar taka til við að kryfja til mergjar innviði hins baggalútíska samfélags.Færir Vlad Stórann kassa fullann af einhverju bláu.
Ég ítreka aftur beiðni frá fyrra Gestapóári um að verða opinbert lukkudýr Bagglýska heimsveldisins, sé sú staða laus Þefar uppi kóbaltnámu handa forsetanum
Sem Dýramálaráðherra get ég staðfest að Dýrið er hæft í þessa stöðu.
Ég held ég geti stutt það, já.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að eftirfarandi umsóknir og/eða hugmyndir að embættum hafa komið fram:
Þarfagreinir: Greifinn af Þarfaþingi
Ívar Sívertsen: Stórvesír yfir Baggalútíu, sjeik af Kaffi Blút (með röri), hljóðfæramálaráðherra, guð
Hexia de Trix: Alma Mater Baggalútíu
albin: Snillingur
Montessori: Flugmálaráðherra
Billi bilaði: Fornleifaleyfismálaráðherra
J. Stalín: Aðalritari
Nermal: Geimferðamálaráðherra
Gísli, Eiríkur og Helgi: Gautaborgarmálaráðherra
Anna Panna: Skrifstofustjóri ráðuneytaráðuneytis
Hvæsi: Forsætisráðherra
Upprifinn: Hirðskáld krumpu
Dýrið: Lukkudýr baggalútíska heimsveldisins
Flest gengur þetta upp, þó bendum vjer Nermal á að breyta umsókn sinni þar eð Golíat sinnir umræddu umbætti og er eigi óvirkur hjer. Nú auglýsum vjer hjer með formlega eftir umræðum og/eða mótbárum áður en þetta verður allt samþykkt formlega Safnar saman úr þræðinum góðgæti á borð við kóbalt og plútóníum og býr sig undir að innheimta 'stimpilgjald'.
Og hvað er það mikið?
Yppir öxlum og fjórfaldar ríkissjóð Baggalútíu
Færir Vlad tvöþúsund kóbaltbláar og gullslegnar möppur undir eyðublöð og fylgiskjöl, kyrfilega merkt Forsetaembættið með gylltu letri
Þetta ætti kannski að duga fyrir stimpilgjaldinu? Já og ég gleymdi þessu... Dregur upp úr pússi sínu kóbaltbláan kakóbolla, merktan Vladimir Vasilievich, einnig með gylltu letri
Komið?
Ég er mun betri Geimferðaráðherra en Golíat. Ég er virkari og fallegri og einn fremur er auðveldara að múta mér.
Gleymir 2 skjalatöskum á borði forsetaembættisins, önnur stútfull af böggum og hin stútfull af bíllyklum af 400 fulllestuðum trukkum af plútóníumi og kóbalti
Í tilefni hálfs árs rafmælis míns óska ég eftir því að verða sérstakur peningateljari forsetahirðarinnar. Einnig óska ég eftir því að verða yfirmaður greifastofnunar Baggalútíu.
Lætur vígja hallir fyrir forseta, konung, keisara, soldán, aðalritara og alla hina
Framselur Maó í hendur forseta Baggalútíuheimsveldisins
Afhendir ríkisstjórn lyklana að kakónámum í Sierra-Leone
Þú gætir nú líka orðið ágætis Seðlabankastjóri.
Þefar í suður. Þefar í austur. Þefar í vestur. Þefar aftur í austur Ég held að það sé fjársjóður í þessa átt. Labbar smá spotta og grefur upp kistu fulla af gullpeningum og gimsteinum Hvað eru þessi stimpilgjöld annars há? Er þetta nóg?
Þú gætir nú líka orðið ágætis Seðlabankastjóri.
Já, þar segirðu nokkuð! Hér með sæki ég líka um það.
Kaupir allar kóbaltnámur í heiminum sem ekki heyra þegar undir Baggalútíu og afhendir ríkisstjórn
Kaupir Rolls handa öllum í ríkisstjórn Baggalútíu
Ekki get ek ímyndað mér að greifinn yrði í vandræðum með þessi störf... hann fær mín meðmæli.
Kaupir stiganhandrið fyrir alla stjórnarmenn Baggalútíu
Seðlabankastjórastóllinn var í höndum Brenjars minnir mig. Hann hefur þó ekki sést lengi.
Hið háa konungsembætti tilkynnir hér með opinberlega að opinberlega birtur embættismannatillögulisti héðan af opinberlega verið lesinn af hálfu konungsembættisins og er hér eftir gefin út eftirfarandi konungleg stjórnsýsluskipun af hálfu konungdæmis Baggalútíu um konungssamþykkt á opinberum embættisveitingatillögum hins opinbera forsetaembættis og hér með lagt til að hin, hér eftir, opinberu embætti verði opinberlega færð til bókar á hinum opinbera embættismannalista baggalútíska heimsveldisins.
Undirritað opinberlega,
Hakuchi
Konungur Baggalútíu
Ég tók eftir því að það er enginn Utanríkisráðherra í Baggalútíu. Ég bíð mig hér með fram í starfið.
Utanríkisráðherra? Er ekki öllum hér sama um allt sem gerist utan Baggalútíu, nema landvinninga Heimsveldisins?
Einhver verður að stjórna í "provincia"onum