Til þeirra er málið varðar.
Ég hef eigi svo haukfrá augu að ég geti með góðu móti sætt mig við 4 til 5 punkta letur í orðabelgnum. Það fer allt í belg og biðu þegar línur verða fleiri en tvær, sem eykur hættu á innsláttarvillum með tilheyrandi prófarkarlestri. Ég heiti 4 bananaknippum til þess órangúta sem leysir málið.
Er ekki hægt að stilla leturstærðir í vafranum sjálfum? Yfirleitt eru stærðir small, medium og large í boði.
Gallinn við þá aðferð er sá að þá breytist stærð allra texta allsstaðar.
Vjer erum sammála því að textinn er birtist er slegið er inn í Leggja orð í belg er óþarflega lítill.