Uppfært 29.04.2007 eftir 18. hagyrðingamótið á næstu síðu.
Lifi Regína!
17. hagyrðingamótið tókst mjög vel að mínu mati.
Ég tek heilshugar undir það.
xTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxT
Já satt er það. Regína er líka kjarnorkukona.
Æ missti ég af þrusu góðu hagyrðingamóti.
Ég var alla vega búinn að semja eina vísu áður en andinn hvarf.
Páskaegg krufið og kannað
konfekti bragðað er á,
Kúlur og innihald annað
eignig má pappír þar sjá,
Fagurt og fallega hannað
fuglsungi er þar á stjá
Ofmikið etið það bannað
ei vill ég drulluna fá.
Dula, Offi, Bölverkur og Billi,
mætu skáldin mærum vel,
margir sýndu snilli.
Ljómar upp
Ætli Vímus hafi einhverjar fréttir af næsta móti?
Starir þegjandi út í loftið
Hann er allavega innipúki núna . Það er í lagi að senda honum einkapóst.
Hæ elskurnar mínar! Ég hef ekki frétt neitt.
Þú átt að ákveða næsta mót.
Hæ elskurnar mínar! Ég hef ekki frétt neitt.
Geturðu ekki veitt eitthvað upp úr þér? Með einhverju sannleikslyfi eða öðrum yfirheyrslubrögðum?
Brosir breitt
Ég náði því upp úr mér með 220 W stuði að það yrði í vikunni.
Næsta hagyrðingamót verður haldið sunnudaginn 29. apríl kl 21.00 - 23,00.
Yrkisefni.
1. Kynning ef menn vilja.
2. Lífshlaup ykkar. Helst 2 - 3 erindi.
3. Hvers konar fyrirbæri er þetta Gestapó?
4. Eftirmæli um ykkur sjálf. Sögð í 3. pers. Ekki færri en 2 erindi.
Dæmi. Ég yrki um hann Vímus
Stórmenni er fallið frá
fíkillinn hann Vímus.
5. Síðan spinnum við þetta eftir eyranu.
Þangað til. Góða helgi og skál!
Illviðráðanlegar aðstæður (væntanlega orsakaðar af óvinum ríkisins) gera það að verkum að mjög sennilega get ég ekki mætt á mótið, frekaren svo oft að undanförnu.
Skyldan býður mér þó að hvetja alla sem vettlingum valda tilað taka þátt. Allir skyldu svo vanda kveðskapinn sem mest þeir mega – annað væri ekki samboðið hinum hávirðulega mótsstjóra.
Þá held ég að nú sé best að fara að sofa og nota næstu tvo daga í undirbúning.
Ég tilkynni það hér með að ég mun yrkja á mótið, vonandi nægilega vel til að gestum líki. Því miður verð ég líklegast staddur í Mongólíu á leiðinni heim þegar mótið fer fram þannig að ég mun nota einhvern Gestapóa hér sen málpípu...Starir þegjandi út í loftið
Ætli Vímus finni ekki Hagyrðingamótsþráðinn?
Klórar sér í höfðinu