Hlæja og hangsa með vinkonum mínum. Ljómar upp
Ég var að gera sunnudagskrossgátuna.
Ljómar upp
Sagðistu ekki venjulega vera búin um tíuleitið? Klórar sér í höfðinu
Ég var að horfa á endurtekið efni í síðustu Spaugstofu vetrarins.
Ég var líka að hlusta á söngatriði spaugstofunnar. Yfir til þín... virkaði ekki eins vel á mig núna og oft áður.
Ég var að borða kvöldmat.
Sagðistu ekki venjulega vera búin um tíuleitið? Klórar sér í höfðinu
Það er allur gangur á því, kláraði um tíuleytið síðasta laugardag.
Ég var að klára að gefa börnunum heimabakaðar pizzur og heita ávaxtaköku með ís og rjóma í eftirmat. Það er ógeðslega gaman að vera gamla frænka sem fær að fylla þau af óhollustu og skila þeim svo aftur! Ljómar upp
Ég var að koma af ömurlegu kaffihúsi (sem varð fyrir valinu í stað veitingahúss) þar sem ég fékk ömurlegan mat, ágætt kaffi og nokkra bita af súkkulaðiköku dóttur minnar.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég var að vakna geispar og fær sér hunang í kvöldmorgunmat
Ég var að horfa á breska heimildarmynd sem hefur verið leynilega fjármögnuð af Lýsi hf.
veltir fyrir sér hvaða heimildarmynd það hefur verið
Ég var að borða kínverskan pinnamat.
Það var mynd um ágæti ómega 3 fitusýru.
Ég drekk reyndar svona ómega olíu á hverjum degi (frá Lýsi auðvitað). Ég keypti það í staðinn fyrir lýsið. Ég var reyndar að átta mig á að þessi olía er bara með ómegu 3, engu öðru. Ég hélt ég væri bara að drekka ómega 3 ríkara lýsi. Þetta er viss ókostur. Á móti kemur að þessi ómega olía er mun bragðbetri en blessað lýsið.
Jæja jeg var i zoo meå syni minum (dula her sko) Hitti forstjora hlerunarstofnunar på srøget i gær Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndiðMjøg gaman . Nu er fremur kalt i københavn.
Það var mynd um ágæti ómega 3 fitusýru.
Ég drekk reyndar svona ómega olíu á hverjum degi (frá Lýsi auðvitað). Ég keypti það í staðinn fyrir lýsið. Ég var reyndar að átta mig á að þessi olía er bara með ómegu 3, engu öðru. Ég hélt ég væri bara að drekka ómega 3 ríkara lýsi. Þetta er viss ókostur. Á móti kemur að þessi ómega olía er mun bragðbetri en blessað lýsið.
Var þetta nokkuð hin meinta "undraolía" frá Udo Erasmus? hryllir sig
Ég var að kaupa sturtuhengi.
Ég var einnig að fá ömurlegar fréttir sem gætu leitt til þess að ég þurfi að spandera smilljón billjónum í að skipta um glugga hjá mér. Ég hata nágranna. Af hverju geta þeir ekki bara sett fötu undir lekann og látið mig í friði?
Færist nær úthverfaplebbahugsjóninni um að eignast einbýlishús

Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Býrðu ekki í höll?!!
Helvítis PR gaurinn sagði að það kæmi vel út að búa meðal almúgans.
PR gaurinn hefur verið sendur ofan í þrælanámu í Mið-Asíu. Nágranninn mun hverfa á dularfullan hátt innan sólarhrings og ég ætla að láta jafna hverfið við jörðu og láta byggja konunglegan skemmtigarð úr því.