(Annars vegar sletta, og hins vegar að raða upp ákveðnum „broskalla“táknum í „bannfærðar“ raðir í stað þess að nota „SVIÐSLÝSINGAR OG SÉRTÁKN“ sem þú sérð hægra megin við „LEGGJA ORÐ Í BELG“ skráningargluggann.)
Ég iðrast í sand og ösku og strengi þess heit, að nota aldrei broskarla, enskuslettur né annan slíkan ófögnuð, á þessari líka ágætu síðu. Ég vona að þið takið þessa einlægu bæn mína til íhugunar.
Ég skal meira að segja nota dekkra letur en Billi Bilaði.
Batnandi englum er best að lifa.
Veifar hendi
Rauður leiserdepill hverfur af enni Zeriaph
Eða öpum, sökum skammlífis á Gestapó (sjá einkennismynd). En hann lofar góðu, blessaður.
Reyndar ætlaði ég að skjóta á Viggó líka, en þar fór það. Þetta hljómar kunnuglega, samt.
Ég ætla að varpa fram smá vísbendingu.
Þessa setningu er ekki að finna í bókunum um Viggó en þetta tengist honum samt sem áður.
Svalur og Valur þá?
Eins og fram hefur komið, já þetta er Svalur og Valur .
Jú, þetta er Svalur og Valur - en í hvaða bók.
Gæti verið í bókinni sem hét...gullgerðarmaðurinn eða alkemistinn eða eitthvað svipað, þar sem þeir finna gullgerðarmaskínu?
Er það Valur sem mælir? Úr bókatvennunni þar sem þeir fóru í týnda heiminn?
Er það Valur sem mælir? Úr bókatvennunni þar sem þeir fóru í týnda heiminn?
Þetta er jú, Valur sem mælir þessi orð.
En þetta er ekki úr bókatvennunni þar sem þeir fóru í týnda heiminn
Keppnin er ennþá í gangi, það er enginn búinn að geta uppá hvaða bók þetta var í.
Jæja, það er auðséð að enginn er nógu vel lesinn í heimi fagurbókmennta þeirra Svals og Vals.
Ég ætla að gefa upp svarið við þessari spurningu sem ég bar fram og enginn hefur getað ráðið.
Þetta var bókin Svaðilför til Sveppaborgar og Valur mælti þessa setningu áður en Svalur dró hann frá vinnu í frí.
Nú skora ég á Tina St.Sebastian að taka við þar sem frá var horfið. Ég stal nefnilega spurnarréttinum af henni og skila honum hér með tilbaka. Nema ég fái áskoranir um annað.
Mikið óskaplega ertu fallegur á litinn. Komdu einhverntíma á gula þráðinn.Stekkur hæð sína
Tina vill augljóslega ekki réttinn. Ég hirði hann því bara.
Við rjúfum útsendinguna vegna tæknilegra vandamála. Í staðinn verður sýnd heimildarmynd um körfugerð neðansjávar.
Þess ber að geta að þetta er skrifað eftir minni.
Þetta greinilega úr Sval og Val
Er þetta ekki úr bókinni þar sem Birta(?) kemur með heimildarmyndina um Gorm?
Hvorugt er rétt.
Myndasaga þessi er afar vinsæl.