Gulur
Gættu þess að vera ekki of dómharður, það hafa allir sína galla
Huh. Þetta er gölluð spá. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Neibb. í mínum heimi eru allir fullkomnir.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Mér leiðist að kaupa föt!
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Litaspá dagsins fyrir litamerki Baggalútíu.
Rauður
Farðu út að skemmta þér í kvöld. Þú átt það skilið eftir annríkið undanfarna daga.
Grænn
Dagurinn er upplagður fyrir verslunarleiðangur. Gættu þess þó að eyða ekki um efni fram.
Blár
Varastu að blanda þér í einkamál annarra, það er sjaldan vel þegið.
Gulur
Þetta verður einn af þessum rólegu dögum. Farðu í verslunarleiðangur.
Brúnn
Reyndu að láta fjárhagsörðugleikana ekki bitna á heimilislífinu. Vertu heima hjá fjölskyldunni í kvöld.
Liljubleikur
Taktu það rólega í dag, eyddu kvöldinu heima með fjölskyldunni.
Sterkgulur
Reyndu að stilla skap þitt. Reyndu allavega að láta skapvonskuna ekki bitna á fjölskyldunni.
Grár
Gættu þess að vera ekki of dómharður, það hafa allir sína galla, líka þú.
Hrifblár
Reyndu að vera svolítið sjálfstæðari og hættu að láta aðra hugsa fyrir þig.
Rjómahvítur
Persóna sem þú hefur metið mikils mun valda þér vonbrigðum með framkomu sinni.
Ísblár
Farðu eftir eigin sannfæringu og hættu að hugsa alltaf hvað öðrum finnst um þig.
Litaspá þessi er ætluð til dægrastyttingar en eru ekki nákvæm vísindi
Ákveður að láta bara vaða og ganga um nakinn
Gulur
Þetta verður einn af þessum rólegu dögum. Farðu í verslunarleiðangur.
Snökktir
Ég sem þoli ekki búðir.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Grænn
Dagurinn er upplagður fyrir verslunarleiðangur. Gættu þess þó að eyða ekki um efni fram.
Þá er þetta besti dagurinn, þá er ég örugg með að finna eitthvað sem mér líkar.
Litaspá dagsins er mér sannarlega í hag. Ég elska að versla.
Stekkur hæð sína og rýkur af stað í allsvakalegan verslunarleiðangur
Mig langar ekkert að eyða kvöldinu með fjölskyldunni! Mig langr miklu fremur að fara út og hitta fólk. Ég eyði alltof miklum tíma með fjölskyldunni eins og er.
Já, farðu og hittu einhverja. Ég er reyndar upptekinn.
Litaspá dagsins fyrir litamerki Baggalútíu.
Rauður
Reyndu að hugsa svolítið minna um sjálfan þig. Þú verður að athuga að það eru fleiri til í heiminum en þú.
Grænn
Þú munt þurfa að taka erfiða ákvörðun í dag. Treystu á eigin dómgreind fremur en að fara eftir ráðleggingum annarra.
Blár
Fjárhagurinn er í það góðu lagi að þér er óhætt að slaka á. Farðu þér hægt.
Gulur
Þú munt ná góðum árangri með samvinnu við félaga þinn í dag.
Brúnn
Reyndu að eyða svolítið meiri tíma með fjölskyldunni. Vertu heima í kvöld.
Liljubleikur
Vertu svolítið tillitsamari í umgengni þinni við annað fólk.
Sterkgulur
Gættu þess að eyða ekki of miklu í dag. Fjárhagurinn er ekki í sem bestu lagi.
Grár
Ljúktu við þau verkefni sem liggja fyrir hjá þér áður en þú byrjar á nýjum.
Hrifblár
Reyndu að blanda meira geði við annað fólk. Þú ert alltof einrænn.
Rjómahvítur
Hlustaðu á hvað aðrir hafa til málana að leggja. Það er ekki víst að þú hafir alltaf á réttu að standa.
Ísblár
Nú verður þú að fra að spara. Þú eyðir allt of miklu í óþarfa.
Litaspá þessi er ætluð til dægrastyttingar en eru ekki nákvæm vísindi
Gulur
Þú munt ná góðum árangri með samvinnu við félaga þinn í dag.
Samvinnuþýð
Þú munt þurfa að taka erfiða ákvörðun í dag. Treystu á eigin dómgreind fremur en að fara eftir ráðleggingum annarra.
Ég er alltaf að taka erfiðar ávarðanir, og ég treysti bara á dómgreind þess sem ég treysti best. Ætti ég að koma mér út úr húsi fyrir hádegi í dag?