— GESTAPÓ —
Ein kristileg umvöndun að öldnum sið
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 4/10/03 16:03

Svipan löðruð svita og blóði
svörðinn flakar hörð
kenning er í hennar hljóði
heilög sáttargjörð

Vandarstefið líkist ljóði
líkn er ekki smá
holds úr feitum syndasjóði
sálu bjarga má

spottaþjófur þegninn góði
þenkir hvað er skakkt
kyssir vöndinn veikur sóði
virðir drottins magt

Amen

Dr.Barbapabbi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 5/10/03 12:38

Keyrið það er skemmt og skakkt
skekið var samkvæmt réttar-akt.
Svo fólk mæti drottins makt.
Meistarans ljúfa viskuprakt.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: