Dvöl á þessum djöfuls hælunum
drjúgan hirti af mér toll.
Að gera menn að þöglum þrælum
þannig vist er engum holl.
Hollur matur Ölið er
enda vímugjafi
Bjór er ekki bölið hér
bararöltið skemmtir mér.
Leonetar lýsa bjart,
leiftrar himinn dökkur,
himinslitur hét víst svart,
hvarf þó þetta rökkur.
Rökkur yfir fjörðinn færist
Friðsælt regnið lemur þökin.
Hvergi hár á höfði bærist.
Hrífa fólkið andartökin.
Andartökin endast bara augnablik.
Handtökin því hafðu kvik
ef hlýtt í auga sérðu blik.
Blik í þvott var bísna flott
blettum mjög úr dró.
Einnig tott mun afar gott
ef það veitir fró.
Fró mér veitir fjandans vínið
flestum stundum teyga ég.
Ég pissa svo í postulínið,
píri augun þreytuleg.
Þreyturlegar veginn þramma
þráin eftir körlum vex
orðin fyrir löngu amma
ein og hinar allar hex
[Hér er stuðlavila vinur... of langt á milli stuðla í fyrstu og þiðju, fyrir utan vott af ofstuðlun... Skabbi]
Þreytulegir þriðjudagar,
þerra allan dug.
En Ákavítið alltaf lagar,
og eflir veikan hug.
Hugur tómur enginn ómur
aumt mitt sjúka vísnakver
Væri rómur heljar hljómur
hristist mjúkur bísna sver.
Sver sig æ í ættarhlóðir,
austfirðingur.
Álverin og ex-bé glóðir,
oft um syngur.
Syngur jólasveinninn lag
Um sviplegt fráfall Grýlu.
Feikigömul fékk hún slag
og fór í hinstu hvílu.
í hvílubrögðum hvarvetna
hvergi sleppi færi
hvergi á ostru óétna
eða ókönnuð læri.
Síðbúin grillvísa...
Lærisneiðar ljúfar set,
á ljóta grillið aldna,
vökva sál því vakið get,
viskípelan faldna.
Faldna myndavélin mín
Mæja fann á Spáni,
þar var gaman sældar grín
með Gunnu Jóns, að láni.
Garðar átti góðan son
geysilega flinkan.
Íslands var hann eina von,
en svo drap hann þynnkan.
Þynnkan er að þjaka fólk
í Þistilfirði og víðar
Þá er bestur mjaða mjólk
magnast hægðir stríðar.
stríðum fer í straumum þá
stendur buna úr gati
enginn slíka sjón vill sjá
svartann skít á fati