Klósettpappír, kaffi, lauk,
kókómjólk og safa;
eggjabakka og aldinmauk,
inn kaupi án tafa.
Nautatungu, negul smá.
Nýmjólk, epli, banana.
Glæný lungu, líttu á.
Létt reyndist að man´ana.
Ég fór út í búð um daginn. Mamma henti í mig 2000 kalli og sagði: "Kauptu bara eitthvað í matinn."
Gerði ég mér þá lítið fyrir, kom bæði sjálfum mér og afgreiðslukonunni á óvart þegar í ljós kom að það sem ég hafði skellt í innkaupakörfuna kostaði nákvæmlega 2000 krónur. Varð þessi vísa þá til við afgreiðsluborðið:
Óvænt eru örlögin
og ætíð má þeim skaka
Ég ætla að sjá um innkaupin
og ekkert fæ til baka.
Skrepptu góði kauptu kók,
karamell & súkkulaði,
kókópuffs & kannske smók,
kúlusukk & .. NÚ með hraði!
Óvænt eru örlögin
og ætíð má þeim skaka
Ég ætla að sjá um innkaupin
og ekkert fæ til baka.
urrrrr hvað þetta er fín vísa.... já, urrrrr segi ég!
-
Kappinn klæddur í vettling,
keypti í búðinni mjólk.
Kauði passar sinn kettling,
karlinn er betri en flest fólk.
-
við kassann
hundur köttur hænsn og svín
hér í poka breima
humar, krydd og kláravín
hverju er ég að gleyma
sleikir græðgislega útum við tilhugsunina um framandi pottrétti
Lítinn klút og lamparak,
ljósmeti og færi.
Naumlega skorið neftóbak
og nítján faðma snæri.
Eftir svoddan kostakaup
kaupmanns skikk er góður,
brennivíns að bjóða staup
belgmikill og rjóður.
Neisko, Smali mættur.
Ediksýrur, eplaböku, handáburð
eldspýtur og heftifíl
jógúrtdollu, radísur og riddskex, smurð
rauðsprettu og matsbokksbíl
Ákavíti, vodkalögg
Viskífleyg í tösku
Ruddatóbak roknaslögg
Rodenbach í flösku