Drekkur fimm sopaNú skal sko drukkið vel Tæmir tunnu af blút
Réttir Ferrari aðra tunnu af blút til vara
Drekka skal ég dágott vín og duga lengi,
Gott ef konu glaða fengi.
Drekkur fimm gúlsopa
Tekur sér stöðu við Blútkranann
Komið hérna kvikindi,
kneyfið Blút af krana.
Botnið þetta aumingjarnir ykkar.
Komið hérna kvikindi,
kneyfið Blút af krana.
Lútur verður líf, yndi;
leiðindum að bana!
Drekkum kappar! xTxT
Komið hérna kvikindi,
kneyfið Blút af krana.
Lútur verður líf, yndi;
leiðindum að bana!
Drekkum kappar! xTxT
Grætur af hlátri
KAPPAR?!
Tekur ofan fyrir Húmbaba og réttir honum fimm lítra af Blút
Þetta kalla ég gott hjá þér, en ekki reyna að skjóta á mig fyrri parti þar sem ég er gjörsamlega ónýtur í öllum kveðskap samkvæmt niðurstöðum sem hæstvirtur handklæðahaus hefur komist að.
Komið hérna kvikindi,
kneyfið Blút af krana.
Lútur verður líf, yndi;
leiðindum að bana!
Drekkum kappar! xTxT
Grætur af hlátri
KAPPAR?!
Efastu um kappmennsku okkar Aulinn? xT
Vjer nær aldrei erum hjer
ekki smökkum blút (eða þannig)
Ef vísu þessa vertinn sjer
víst oss kastar út
Skál ! Sýpur á fagurbláum drykk með leynilega efnasamsetningu
Sest við barinn
Kæri Vert, get ég fengið eitt ylvolgt blóðglas. A- ef þú átt það til.
Fyllir kollu af Blút
Vesegú. Blútur heitir það hér góði.
Hafiði þér drykk sem lætur daginn líða hraðar svo að vér þurfum ekki að hanga svona í vinnunni?
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Smakkar á Blútnum
Tekur upp poka frá Blóðbankanum og skvettir út í glasið
Þökk fyrir minn kæri.
Hafiði þér drykk sem lætur daginn líða hraðar svo að vér þurfum ekki að hanga svona í vinnunni?
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Jaaaahh?
Ég er með eina hugmynd um hvernig dagurinn getur liðið hraðar.
Komdu, ég skal hvísla því að þér.
Þegar Myrkur hallar sér fram dregur undirritaður fram kylfu og bankar mátulega fast í kollinn á Myrkrinu sem lognast út af steinþegjandi og hljóðalaust.
Þá er það afgreitt. Dagurinn ætti að líða nokkuð hratt úr þessu.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Starir tileygður út í bláinn og bendir upp í loft.
Þjónn! Reykninginn takk.
Lognast útaf með sælusvip
Stekkur inn á harðahlaupum
Blút ! Og það mikið af honum !
Skellir í sig blútnum og hverfur aftur út í rigninguna
Rankar við sér. Lítur upp og horfir í kringum sig
Gaman?
Fer aftur að sofa
Lítur inn, sest niður við glugga og lítur út