Já, hér eru sko allir vinir.
Nema ég. Ég er kartafla.
Sýnir öllum písmerkið
Hoppar og skoppar og baðar út öllum öngum
rennur á lyktina
Er það hér sem ástin blómstrar og allir eru vinir?
Réttir Uglu jónuna
Hérna baby. Hey! Flott lag maður.
Já, hér eru sko allir vinir.
Eigi getur það verið. Listinn yfir óvini ríkisins er lengri en nokkru sinni fyrr Sýnir stærð listans er lengdist nýlega mikið eftir að allir apar í Afríku bættust á hann.
Þetta er ferlega uppbyggilegt Vamban. Eitthvað svo...já.
Strýkur krumpurnar úr mussunni og vefur jónu
Þarna var málefnalegi stjórnmálamaðurinn í mér að verki.
Pís át!
Hér er ekki hugsað nógu stórt. Við erum hér með stærsta jökul Evrópu sem gengur hægt að bræða. Nær væri að steypa varnargarð í kringum allan jökulinn. Síðan væri hægt að hella þar heitum kjarnorkuúrgangi, ellegar sprengja nokkrar H-sprengjur til að bræða jökulinn og gera hann að einu stóru uppistöðulóni. Síðan yrði dælt úr virkisgarðinum allt í kring og úr verður rafmagnað fyrirbæri.
Ísland verður Kúveit(a) jarðarinnar.
Við gætum líka einfaldlega bútað ferlíkið niður og selt sem ísmola.
Jöklar bráðna einstaklega hægt, jafnvel í litlu formi og væru því tilvaldir í nokkur glös.
Skálar í viskí
Ef stjórnmálamenn hér á Íslandi myndu nú virkja heilafrumurnar, þá yrði ég sáttur.
Það væri hægt að vökva frumurnar með smá kláravíni.
Eru þær ekki einmitt dauðar þess vegna?
Það gæti nú verið, hugsanlega þarf að skipta um stjórnmálamenn áður en hægt verður að virkja það sem er í kollinum á þeim.
Eða græða í þá nýja heila. T.d. úr öpum.
Það má einnig virkja kaffihús. Það gengur ekki að hugsa bara stórt, verður líka að hugsa smá smátt. Því margt smátt gerir jú, eitt stórt.
Það má seint og illa gagnrýna virkjun fallvatna til raforkuframleiðslu, það er einn öruggasti og umhverfisvænasti orkugjafi sem fyrirfinnst auk þess sem hann býr við þann kost að vera sjálfbær.
Áhyggjur(röfl) umhverfisverndarsinna stafa af því í hvað orkan sé notuð.
Ég get verið sammála því að álver séu e.t.v. ekki fýsilegasti kosturinn í stöðunni en á bágt með að finna einhverja málamiðlun.
Íslenska ríkisvaldið hefur mér þótt hægri sinnað í hegðun en sósíaldemókratískt í funktíón á undanförnum áratug, eins og maður með tvo vinstri fætur og tvær hægri hendur, útkomman ekkert nema miðjumennska.