Tað ber til at Tjaldrið er ikki í Merkinu!
Sundleygur Vatna til lukku!
Tina, þeir féllu í hinn kristna skurð þjóðfána Norðurlandanna með að þræla krossinum inn í fánan eins og Finnar.
Lýsir upp Dugir tú at tosa og skriva føroyskt, Albert?
Annars finnst mér það nokkuð skemmtileg hefð Norðurlandanna, einnig Finnlands, að bera öll krossfána með skurðpunkti í stangarreit. Þetta er kallaður norrænn kross á máli fánafræðinnar og er einstakur fyrir þessi lönd.
Þar fyrir utan eru fánar auðkennismerki og eiga að vera einfaldir að gerð.
Nú spyr ég hvað á fáni Grænlendinga að tákna?
Sá fáni er reyndar eini norðulandafáninn sem ekki ber norrænan kross en hönnuður þess fána lét táknið í honum vísvitandi liggja inn á stangarreit til að vísa í tengslin við hin Norðurlöndin.
Mig minnir nú að það hafi veið jöklar, ísjakar, fyrðir og sjórinn. Annars er ég alls ekki viss Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Það er svo ósköp langt síðan ég lærði þetta.
Eitthvað segir mér að danmörk eigi þar hlut að máli... rétt eins og þegar þeir þröngvuðu upp á okkur rauða litnum!!
Þetta er í öllum meginsmáatriðum hárrétt hjá henni Skottu.
Við hlustum ekki á bullið í hinum rithalta Húmbaba.
Jæja, hvar er næsta?
Hvaða dýr á jarðarkrniglunni er með lengsta skottið?
( Ath. að einnig koma til greinar halar, dindlar og þessháttar en spyrill ákvað að notast við orðið skott því það er best.)
Kyrkislöngur?
Nei og nei. Og ég vil taka fram að ég er að tala um landdýr hér. Svo að sporður er ekki með.