Með tilliti til yfirvofandi fuglaflensu-faraldurs tel ég áríðandi að heilsugæsla mín verði færð ofar á Baggalútíu.
Mér virðist einnig andlegu ástandi Bagglýtinga hafa hrakað til mikilla muna undanfarið.
Lækninguna Vímus veitir
verstu ræfilstuskum hér
raflosti hann brattur beitir
bíður spenntur eftir þér.
Tekur rafmagnið af heilsugæslunni
Hvar er aftur þessi heilsugæsla... ég er að drepast í tannpínu Deyfir kjaftinn með Ákavíti
Vímus, geturðu losað mig við sviðann úr vinstra lunganu?
Þú segir nokkuð! Sviði í vinstra lunga?
Hvað í andskotanum fær þig til að trúa þessari firru?
Starir þegjandi út í loftið og hlustar stjórann
Það pípir reyndar í þér eins og gömlu lampatæki og ég ráðlegg þér að hafa aðeins meira tóbak í jónunum.
Sviðinn stafar frá hjartanu sem djöflast ein 200 slög á mínútu.
Hvað á ég oft að segja ykkur að taka róandi með lyftiduftinu?
Ég srifa uppá 30 flunitrazepam. 1 mg. 1 x 3 á dag og pumpan kemst í réttan gír.
Losun segirðu? Nokkuð til í því líklega. Mér skilst að til séu gangvegir sem eru sérsniðnir til þess. Kannski ég þyrfti að finna mér einn slíkan. Er kjörlendi þeirra ekki knæpur síðla nætur?
Heldurðu nokkuð að þetta geti stafað af óhóflegri flórsykursneyslu samhliða kókómjólkurdrykkju?
Losun segirðu? Nokkuð til í því líklega. Mér skilst að til séu gangvegir sem eru sérsniðnir til þess. Kannski ég þyrfti að finna mér einn slíkan. Er kjörlendi þeirra ekki knæpur síðla nætur?
Þröngir og slímugir gangar henta best til slíkra þarfa Þarfi minn.
Ertu nokkuð að láta moka flórinn hjá þér
Ef þú ert hins vegar að éta flórsykur í staðinn fyrir lyftiduft þá er ekki von á góðu
Ég þjáist af bráðabulli örhugsun og ýmsu smálegu ertu ekki með lyfseðilsblokkina hérna einhverstaðar.
ég er með svaka verk 3 cm fyrir ofan hárið.Hvað er hægt að gera í því ?