Það er frekar óþægilegt að geta ekki séð öll rit þeirra sem eiga fleiri en 40 félagsrit hér. Hvernig væri ef fyrir neðan félagsritalistann kæmi hlekkur þar sem stæði t.d. Sýna öll sem myndi bjóða upp á einmitt það?
Það er sjúklega góð hugmynd. Alveg geðbilað góð.
Fáránlega góð hugmynd alveg.
Bilað frábær.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Trítlar flissandi út af sviðinu og lokar hljóðlega á eftir sér
Væri ekki nær að maður myndi geta valið sjálfur hvað væri við hæfi að birta á forsíðu Athvarfs manns? Þá gæti maður valið þau félagsrit sem maður væri stoltastur af og hin væru öll einhverstaðar í fjarskanistan.
En ef maður hefur skrifað 41 brjálæðislega gott félagsrit?! Það er maður væntanlega í klípu...
(Ekki það að ég komist nálægt því...)