Ég skrapp í Borgarfjörðinn í dag og þar var 30 cm jafnfallinn snjór og bætti stöðugt í. Ekki vænti ég að Hakuchi hafi komið þar nálægt. Og hafi svo verið, hvernig vissi hann um ferðir mínar? Starir þegjandi út í loftið
Fýlan af þér finnst langar leiðir. Agentar mínir í Borgarfirðinum fundu þefinn og tilkynntu til njósnadeildar Varnamálaráðuneytis.
Tapað og fundið
Ég auglýsi eftir vetrinum.
Finnandi er vinsamlegast beðin um að skila honum vestur á firði
Brestur í óstöðvandi grát
Það þýðir ekkert fyrir þig Hakuchi að reyna að buga mig með snjó. Ég hef alltaf haft gaman af snjó og því meiri snjór því betra enda er ég jeppakall.
Oss grunar að Hakuchi hafi haft í huga svo mikinn snjó að jafnvel stærstu fjallajeppar sætu fastir.
Sko til. Þarna kom það. Varahlutaskipti og vænt spark í vinstri hlið kom maskínunni í gang. Rigningar hafa nú hafist til að leiðrétta villuna sem myndaðist hér fyrr í vikunni. Eftir það ætti maskínan að ganga eftir fyrirframforrituðu árstíðarprógrammi með 5% stókatískum eiginleikum (veðramynstur AlphaC3).
Ég heimta snjó fyrir minn jeppa!.....44 tomman fer ekki vel á malbiki Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann, leggst á bæn og biður vetur konung að aumka ser yfir oss