enn er ár að hefjast
annað lagt til hliðar
á því kná ég krefjast
kærleika og friðar
Friðin núna Dé Vaff drap
djöful þeir við semja,
Vilja mikið mannorðshrap
morðin nú þeir fremja.
Of seinn
Lama Dalai drattast hér
dulítið til ama,
en ekki mikið fyrir mér
mögnuð drama.
Lík nú ergir landsins sál
leikur hérna særir.
Pappír þessi brennir bál
blóðsugurnar nærir.
Nærir andans úldna geð
aumt er fjandans blaðið
mannorð granda get ég séð
grútarblanda taðið
Taðið út á túnið ber
til að grasið spretti,
tindil fættur fjósa her
fljótastur var Letti.
Snúðugur er Stebbi minn
snefsinn framar vonum,
þegar brjótast stelpu skinn
skrækjandi undan honum.
Gnýstuðlun: Stafurinn s hefur sérstöðu í stuðlasetningu. Ef s er stuðull, en næsti stafur er k, l, m, n, p eða t, þá verður einnig svo að vera í hinum stuðlunum. Þetta heita gnýstuðlar: sk, sl, sm, sn, sp eða st
Þetta má laga.
Snúðugur er Snjólfur minn
snefsinn framar vonum
þegar brjótast skvísu skinn
skrækjandi undan honum.
Honum verður brátt í brók
búkinn á sér skekur
en hefur agnarlítinn lók
sem löngun enga vekur.
Vaki þennan vota dag
vona að úr bætist
skyndilegt þá skap í lag
ef skáldaspáin rætist.
Rættist vetrarveðurspá
víst er kuldahretur
enda mun ég undir snjá
eftir þennan vetur.
veturinn er voðalega myrkur
varlað maður staulist út um dyr
húki fremur inni, afar virkur
á internetinu - og borða skyr
Skyrgámur er sóma kall
svelgur ei til ama´,
skyrið á hanns vörum vall
varkár eins og dama.
Damaskus er dýrðarborg.
Drottna Sýrlands herrar þar.
Fljóta þar um flestöll torg
flatlúsugir arabar.
Barður fiskur búinn er
bunga kviðsins horfin
áður stór var bumban ber
brátt verð hungur sorfinn
[Af (van) gefnum tilefnum]
Sorfin er úr sálum margra
sómakenndin tæra.
Horfin er úr hugum argra
heiðursmannsins æra.