Loka hroka lygi moka
Lazarusi glaður býð
Poka loka pillum koka
Páli færi orðin þýð
Þýðir ekkert þjóðin mín
sú þrautaganga,
man ég verkin myrku þín
og meðferð fanga.
Fangar mig nú fögur mey
fiðring vin minn gefur
Vont er fyrir gamalt grey
gæði ei nú hefur.
Hafa skaltu hönd á plóg
hestinn vel um annast
Sofa vært um nætur nóg
og nytka hvað er sannast
Sannlega ég segi þér
sigurvisst er ómið,
heldur fátt í höfði mér
því hausinn fyllir tómið.
Tæmi víst í taulettið
tregt er nú að skjóta
Sullast úr mér saurslettið
súpudrullan ljóta.
Ljót að innan lygin sál
læðist meðfram veggjum
Verður leið að víti hál
viti mögrum seggjum
Ljót að innan lygin sál
læðist meðfram veggjum
Verður leið að viti hál
víti mörgum seggjum
......................Roðnar rofboðslega og borar stærri stórutánni ofan í gólfið
Seggur nautna Nafni er
nærist á kók og malti
nýtur sín best nakinn, ber
Nafni litli halti.
Halti valti Hjalti skalt
haltra malt að kaupa
kalt og þvalt en umfram allt
altsó svalt skalt staupa
Staupin góð hér gerast enn
glóir ljós í anda
allir fróðir andans menn
eiga hrósið vanda
Vanda stundum stökugerð
stuðl'á réttu svæði
Sinni minni sögu mergð
sumt þó varla kvæði.
Kvæði mörg um kvalræði
kveðið hef á lútnum
Skelfingu og skaðræði
skaffað labbakútnum
Kútnum réttir kerla úr
klórar sér og stynur,
hellir oní hamstrabúr
úr hlandkoppnum og glottir klúr
Labbakútinn langar til
leika úti, þarna.
Hann gat bara spáð í spil
spekingur atarna.
Klúryrði og kjaftur er
klámhundanna siður.
Vildi bara þóknast þér
þokkafulli smiður.
Smiður, prestur, smali, frú
smelltu saman vessum
þold´ei óleik þennan nú
þiggur ást frá lessum.
Lessur eru líka frúr
lakka á sér neglur
Kápur fínar klæðast úr
Kunna nokkrar reglur